Áhersla lögð á gæði vörunnar 15. febrúar 2012 11:00 Sigurbjörn Þór Jakobsson, framkvæmdastjóri Pharmarctica.
Á Grenivík við rætur Kaldbaks í Eyjafirði eru framleiddar ilm- og litarefnalausar snyrtivörur og krem undir heitinu APÓTEK. Vörurnar eru framleiddar hjá íslenska lyfja- og snyrtivörufyrirfyrirtækinu Pharmarctica sem stofnað var fyrir tíu árum. Í dag starfa átta manns hjá fyrirtækinu og er vörulínan seld í lyfjaverslunum um allt land. „Lyfjafræðingarnir Torfi Rafn Halldórsson, Jónína Freydís Jóhannesdóttir og Bergþóra Stefánsdóttir hjúkrunarfræðingur áttu hugmyndina að fyrirtækinu og fengu Sænes, dótturfélag Grýtubakkahrepps, með sér í lið við að koma þessu á koppinn. Fyrirtækið var stofnað árið 2002 og hófst framleiðsla ári síðar,“ segir Sigurbjörn Þór Jakobsson, framkvæmdastjóri fyrirtækisins. APÓTEK lyfjalínan samanstendur af mixtúrum, lausnum og kremum og olíum sem framleiddar eru eftir forskriftum lækna. Vörurnar eru allar ilm- og litarefnalausar. „Við höfum bætt við línuna gegnum árin og spönnum nú breytt svið, allt frá hægðamixtúrum og sótthreinsandi efnum sem notuð eru við skurðaðgerðir, yfir í húðvörur fyrir börn og andlitslínu,“ útskýrir Sigurbjörn. „Vinsælustu vörurnar okkar inn á heimilin eru hýdrofíl rakakrem, vaselín og karbamíðkrem. Barnalínan okkar er einnig vinsæl en í henni er barnaolía, barnakrem og barnapúður. Þá erum við einnig í stöðugri vöruþróun og nú stendur til að bæta norskum brjóstdropum við mixtúrulínuna okkar. Þeir hafa ekki verið til hér á landi í mörg ár en voru mjög vinsælir á sínum tíma,“ útskýrir Sigurbjörn. Hann segir að ekki ósvipaðar vörur megi finna á markaðnum en APÓTEK línan sé vel samkeppnishæf þegar kemur að gæðum. „APÓTEK vörurnar eru töluvert ódýrar miðað við gæðin. Verðlagning á snyrtivörum almennt er að stórum hluta vegna markaðssetningar. Hjá okkur er lögð meiri áhersla á gæði en á markaðssetninguna og því getum við boðið lágt verð. Við miðum þó auðvitað alltaf hærra og stefnum á að ná frekari markaðshlutdeild. Markaðssetning erlendis er á byrjunarstigi en við erum að þreifa fyrir okkur í Færeyjum.“ Auk eigin vörulínu starfar Pharmarctica sem framleiðsluverktaki fyrir ýmis fyrirtæki. Pharmarctica framleiðir meðal annars vítamín fyrir lyfjafyrirtækið Icepharma. „Við framleiðum vítamínin Bio Mega og Ein á dag. Sú framleiðsla er orðin umfangsmikill þáttur af okkar vinnslu í dag og sér Icepharma um dreifingu á vörum okkar í apótek um allt land.“ Nánari upplýsingar á www.pharma.is.
Mest lesið Tómas einn vildi halda vöxtum óbreyttum Viðskipti innlent Bláa lónið og Alfreð Gíslason verðlaunuð Viðskipti innlent Skrifstofan á Íslandi lögð niður og óvissa um 75 störf Viðskipti innlent Heiðar Guðjónsson um málshöfðun Gavia: „Það eru engin svik“ Viðskipti innlent Ekkert blabla: „Veikindi eru ekki alltaf orsök veikindaleyfa“ Atvinnulíf Greitt við afhendingu hjá nýrri íslenskri netverslun Samstarf Skipta Citroën og Opel alfarið út fyrir Peugeot Viðskipti innlent Vísar ásökun um rógsherferð alfarið á bug Viðskipti innlent Setja gjald á hraðtískuvörur Viðskipti erlent Vilja skapa hvata til að beina sparnaði Evrópubúa í fjárfestingar Viðskipti erlent Fleiri fréttir Greitt við afhendingu hjá nýrri íslenskri netverslun Þú þarft ekki að vera bílasérfræðingur til að versla í Bílanaust Gluggi er ekki bara gluggi Nýr Nissan LEAF er á leiðinni Nýr og ódýrari valkostur fyrir fyrirtæki sem þurfa að losa úrgang JYSK opnar nýtt og glæsilegt vöruhús í Mosfellsbæ „Þegar þú verður betri manneskja nærðu lengra“ Tryggðu þér betri sýnileika í gervigreindarleit og hefðbundinni leit Sex lausnir sem geta lokað stærstu öryggisgötum fyrirtækisins Sjá meira