Galinn kostnaður vegna öryggisgæslu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 20. nóvember 2012 23:00 Helgi Valur Daníelsson fagnar marki í Evrópudeildinni. Mynd/AFP
Helgi Valur Daníelsson og félagar í sænska liðinu AIK mæta Napoli í Evrópudeildinni á fimmtudaginn og það er búist við miklu fjöri bæði inn á vellinum sem og upp í stúku. Expressen segir frá því að AIK þurfi að eyða yfir einni milljón sænskra króna í öryggisgæslu á leiknum sem er meira en 18 milljónir íslenskra króna. „Öryggsgæslan mun kosta okkur 1.030.240 krónur samkvæmt áætlun og þetta hefur aldrei verið svona mikið. Ég er í sjokki," sagði Johan Strömberg, stjórnarformaður AIK, við Expressen. Stuðningsmenn AIK eru ekki þeir prúðustu í boltanum og Svarti Herinn kallar sem dæmi ekki allt ömmu sína þegar kemur að því að fylgja sínu liði. „Við þurfum að vera með 35 öryggisverði, 100 starfsmenn og 15 slökkviliðsmenn inn á vellinum. Þetta er alveg galið og miklu meira en í nágrannaslag á móti Djurgården," sagði Strömberg. Lögreglan í Stokkhólmi mun meta kostnaðinn eftir leikinn og upphæðin gæti vissulega lækkað. AIK býst við því að borga lögreglunni 6 milljónir sænskra króna í ár og að sú upphæð fari upp í níu milljónir á næsta ári.
Fótbolti á Norðurlöndum Mest lesið Vinicius hefur gjörbreyst eftir lýtaaðgerð Fótbolti Yamal sagði frá því hvað hann sagði við Messi Fótbolti Orðin hans Gavi gerðu Paredes alveg snaróðan eftir úrslitaleikinn Fótbolti Skoraði tvennu þrátt fyrir fjólubláan fót: „Hefðum kannski átt að refsa þeim meira“ Fótbolti Liðalaus Stones eftirsóttur Fótbolti Anderson sendir Nottingham Forest kveðju Fótbolti Rogers og Palmer sameinaðir hjá Chelsea Fótbolti Gagnrýnir harðlega „tilefnislausar samsæriskenningar“ Fótbolti Uppgjörið: Víkingur - Beer Sheva 2-1 | Nikolaj gerði aftur útslagið Fótbolti „Tek fyrri hálfleikinn á mig“ Fótbolti Fleiri fréttir Vinicius hefur gjörbreyst eftir lýtaaðgerð Rogers og Palmer sameinaðir hjá Chelsea Anderson sendir Nottingham Forest kveðju Liðalaus Stones eftirsóttur Óskar Smári Haraldsson: „Margt í okkar leik sem var ekki í lagi“ „Bið strákana um að vera djarfir með boltann og sækja“ Skoraði tvennu þrátt fyrir fjólubláan fót: „Hefðum kannski átt að refsa þeim meira“ „Tek fyrri hálfleikinn á mig“ Guðni Eiríksson: „Við erum að njóta“ „Búinn að bíða eftir svona leik“ Uppgjörið: Víkingur - Beer Sheva 2-1 | Nikolaj gerði aftur útslagið Uppgjörið: Valur – Breiðablik 1-7 | Hrafnhildur Ása og Agla María tættu vörn Vals í sig Hearts sá ekki til sólar í Austurríki Aston Villa reynir að fá Garnacho Dönsku meistararnir steinlágu fyrir þeim pólsku Uppgjörið: Fylkir – Afturelding 3-4 (1-1) | Afturelding í úrslit bikarkeppninnar í fyrsta sinn Uppgjörið: FH – Stjarnan 7-3 | FH heldur toppsætinu Leggur flautuna á hilluna eftir tuttugu ára dómaraferil Stoltur af argentíska liðinu Flækingur fótboltans enn á flakki á milli félaga Gleði Spánverja mældist á jarðskjálftamælum Gagnrýnir harðlega „tilefnislausar samsæriskenningar“ Yamal sagði frá því hvað hann sagði við Messi Sögulegur leikur fyrir Mosfellinga Pressuóðir Ísraelar í Víkinni Sjáðu draumainnkomu Söntu í íslenska boltann Orðin hans Gavi gerðu Paredes alveg snaróðan eftir úrslitaleikinn Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu „Þetta lítur bara illa út“ Svaf ekki fyrir fagnaðarlátum á Spáni Sjá meira