Dröfn Vilhjálmsdóttir, sem heldur úti matarbloggsíðunni Eldhússögur (www.eldhussogur.com), deilir helgaruppskriftinni að þessu sinni. Dröfn sem hefur mikla ástríðu fyrir mat og matargerð segir lífið of stutt til að borða vondan mat.
Kjúklingalasagna með fetaosti og spínati -Fyrir 6
900 gr kjúklingabringur, skornar í litla bita
ólífuolía til steikingar
pipar
1 rauðlaukur, saxaður smátt
2 hvítlauksrif, söxuð smátt
2 dósir niðursoðnir tómatar
1 box fersk basilika
2 tsk. þurrkuð basilika (krydd)
150-200 g ferskt spínat
150-200 g fetaostskubbur
lasagnaplötur
rifinn ostur
Ostasósa
40 gr smjör
4 msk. hveiti
5-6 dl mjólk
2 dl rifinn ostur
Múskat
Pipar
Blandið tómötum og basiliku saman í matvinnsluvél eða með töfrasprota.
Steikið kjúklinginn upp úr olíu á pönnu og kryddið með pipar Bætið rauðlauk og hvítlauk á pönnuna og steikið með kjúklingnum í nokkrar mínútur.
Hellið sósunni því næst á pönnuna og kryddið með basiliku.
Ostasósa:
Bræðið smjör í potti og hrærið hveiti saman við.
Hellið mjólkinni rólega saman við þar til sósan er hæfilega þykk. Bætið ostinum yfir og hrærið saman á vægum hita þar til að osturinn er bráðnaður. Kryddið með múskati og pipar.
Setjið ostasósuna á botninn á eldföstu móti og því næst er lasagnaplötum raðað yfir ostasósuna.
Þá er kjúklingasósa sett yfir lasagnaplöturnar og ofan á hana er dreift spínati og að auki er muldum fetaosti stráð yfir.
Endurtakið nokkrum sinnum og setjið ost á toppinn.
Bakið við 225°C í u.þ.b. 20-25 mínútur.
Berið fram með fersku salati og góðu brauði.
Verði ykkur að góðu!
