Endurnærandi námskeið 26. október 2012 11:03 Námskeiðin eru bæði haldin að sumri og vetri og ávallt reynt að velja stað þar sem mestar líkur eru á góðu veðri hverju sinni. "
Við Edda settumst niður árið 2004 og unnum beinagrind að námskeiðunum sem við höfum svo aðlagað eftir þörfum," segir íþróttafræðingurinn og jógakennarinn Bjargey Aðalsteinsdóttir. Námskeiðin heita Ný og betri og eru ýmist í boði fyrir konur og pör. Gestafyrirlesararnir eru nokkrir og í febrúar verður Edda með í för. Þá verður haldið til Tenerife og er sú ferð einungis hugsuð fyrir konur. Í júní verður svo boðið upp á paraferð og þá verður Ásdís Olsen, sem hefur fjallað vítt og breitt um hamingjuna, Bjargeyju innan handar. "Þá erum við með nýja ferð á prjónunum sem hefur fengið nafnið Ný og betri exotic, en við eigum eftir að móta hana frekar," segir Bjargey. Á námskeiðunum er fléttað saman hreyfingu, næringarfræði og lífsstílsfyrirlestrum. "Við byrjum alla morgna á hreyfingu niðri á strönd og er það upplifun sem flestir kunna að meta, enda höfum við Íslendingar sjaldan tækifæri til þess að gera morgunæfingar á ströndinni. Við förum í gönguferðir og gerum jóga. Næst tekur við góður morgunverður og gefum við okkur góðan tíma í hann enda leggjum við mikið upp úr því að það sé ekkert stress. Í kjölfarið er boðið upp á fyrirlestra en formlegri dagskrá lýkur klukkan hálf tvö og þá fá þátttakendur tækifæri til að spóka sig í sólinni." Skipulögð dagskrá er fimm daga vikunnar en tveir dagar eru frjálsir. Boðið er upp á eina sameiginlega kvöldmáltíð en að öðru leyti ræður fólk sér sjálft. Bjargey segir mikið um að vinkonur, mæðgur og jafnvel heilu saumaklúbbarnir fari í konuferðirnar. "Það er þó alltaf eitthvað um að konur séu einar á ferð en yfirleitt tekst vinskapur með fólki og margar halda hópinn að ferðinni lokinni." Bjargey segir gaman að fylgjast með fólkinu sem sækir námskeiðin blómstra. "Það felst í þessu töluverð sjálfsskoðun en við erum þó ekki að fara mjög djúpt og kafa eftir gömlum sárum. Við erum bara aðeins að klóra í og vekja fólk til vitundar um nýjan og betri lífsstíl." Bjargey segist finna mun á því fólki sem sækir námskeiðin nú og í upphafi. "Ef við tökum konunámskeiðin sem dæmi þá finnst mér þær í miklu betra formi og margar eru þegar búnar að breyta venjum sínum heilmikið. Sumar óska jafnvel eftir meiri hreyfingu en þannig var það ekki til að byrja með. Þetta finnst mér afar jákvæð þróun." Allar nánari upplýsingar um námskeiðin er að finna á heimasíðu Úrvals Útsýnar www.urvalutsyn.is undir flipanum sérferðir.
Heilsa Mest lesið Tómas einn vildi halda vöxtum óbreyttum Viðskipti innlent Bláa lónið og Alfreð Gíslason verðlaunuð Viðskipti innlent Skrifstofan á Íslandi lögð niður og óvissa um 75 störf Viðskipti innlent Ekkert blabla: „Veikindi eru ekki alltaf orsök veikindaleyfa“ Atvinnulíf Heiðar Guðjónsson um málshöfðun Gavia: „Það eru engin svik“ Viðskipti innlent Greitt við afhendingu hjá nýrri íslenskri netverslun Samstarf Skipta Citroën og Opel alfarið út fyrir Peugeot Viðskipti innlent Vísar ásökun um rógsherferð alfarið á bug Viðskipti innlent Setja gjald á hraðtískuvörur Viðskipti erlent Vilja skapa hvata til að beina sparnaði Evrópubúa í fjárfestingar Viðskipti erlent Fleiri fréttir Greitt við afhendingu hjá nýrri íslenskri netverslun Þú þarft ekki að vera bílasérfræðingur til að versla í Bílanaust Gluggi er ekki bara gluggi Nýr Nissan LEAF er á leiðinni Nýr og ódýrari valkostur fyrir fyrirtæki sem þurfa að losa úrgang JYSK opnar nýtt og glæsilegt vöruhús í Mosfellsbæ „Þegar þú verður betri manneskja nærðu lengra“ Tryggðu þér betri sýnileika í gervigreindarleit og hefðbundinni leit Sex lausnir sem geta lokað stærstu öryggisgötum fyrirtækisins Sjá meira