Selecta býður fjölbreyttar lausnir 17. september 2012 12:05 Selecta á Íslandi er hluti af fyrirtækjaþjónustu Innes ehf. sem er ein af stærstu matvöruverslunum landsins. mynd/úr einkasafni
Selecta á Íslandi er hluti af fyrirtækjaþjónustu Innnes ehf. sem er ein af stærstu matvöruheildverslunum landsins og fylgir ströngum gæðakröfum bæði hvað varðar þjónustu og vöruframboð. Fyrirtækjaþjónusta Innnes er í fararbroddi í sölu á fjölbreyttu úrvali drykkjar- og matvöru fyrir vinnustaði, veitingastaði, kaffihús, hótel og stofnanir. Einn af lykilþáttum í starfsemi Selecta er mjög fjölbreytt úrval af kaffitegundum og vélbúnaði sem hentar öllum vinnustöðum, allt frá rekstrarlega hagkvæmum lausnum að kaffihúsagæðum og allt þar á milli. Hvort sem um er að ræða móttökusvæði fyrir viðskiptavini, kaffi- og drykkjarstöðvar á vinnusvæði, afkastamikinn vélbúnað fyrir stór mötuneyti eða litlar vélar fyrir hárgreiðslustofur þá hefur Selecta lausnina fyrir þig. Þjónustufulltrúar okkar heimsækja viðskiptavini reglulega og afgreiða pantanir beint úr bílnum. Ef þig vantar skyndilega kaffi og tengdar vörur þá geturðu ávallt treyst því að þjónustufulltrúar okkar eru ekki langt undan og bregðast hratt og örugglega við. Ómissandi þáttur á hverjum vinnustað er góður aðgangur að fersku vatni fyrir starfsfólk. Hjá Selecta er hægt að velja um nokkrar gerðir kæla sem eru tengdir við vatnslögn og bjóða kælt og kolsýrt vatn. Auk þess eru kælar fyrir 19 lítra vatnsbrúsa í boði sem henta vel þar sem langt er í vatnslögn eða slæm vatnslögn er á vinnustað. Selecta á Íslandi býður hágæðalausnir fyrir hótel, kaffi- og veitingahús. Fyrir afkastamikil kaffi- og veitingahús bjóðum við fullkomnar greipavélar frá Ítalíu auk fylgihluta og kennslu fyrir starfsfólk til að tryggja rétta meðhöndlun og rétt gæði á kaffinu. Fyrir minni veitingahús og hótel bjóðum við fjölbreytt úrval af vélum sem henta þinni starfsemi. Með gæði kaffisins að leiðarljósi bjóðum við lausnir sem bæði krefjast kunnáttu af hálfu notanda en auk þess einfaldari lausnir þar sem minni kunnáttu er krafist. Kynntu þér þjónustu okkar og fáðu tilboð í drykkjarlausnir á þínum vinnustað!
Mest lesið Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Viðskipti innlent Hafa gott fólk í vinnu og borga reikningana á réttum tíma Framúrskarandi fyrirtæki Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Bjarni Benediktsson: „Eftirsóknarvert að vera í þessum hópi“ Framúrskarandi fyrirtæki Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Fleiri fréttir Eigin samastaður í Reykjavík án þess að kaupa heila íbúð Ný bók varpar ljósi á réttindabrot og skaðlega vinnustaðamenningu Ný tækni gjörbreytir öryggi heimila og fyrirtækja Nýr iX3: Tæknibomba sem kann gamla BMW-takta EX60: Sumarást eða samband til frambúðar Nýtt gæðakerfi Michelin Expert center hjá N1 Nýr kafli hafinn hjá NOMY Ert þú með hugmynd sem gæti bætt heilsu fólks? Sjá meira