Berbatov floginn til Ítalíu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 29. ágúst 2012 11:00 Dimitar Berbatov. Mynd/Nordic Photos/Getty
Dimitar Berbatov flaug til Ítalíu í morgun til þess að ganga frá samningi við ítalska félagið Fiorentina samkvæmt heimildum Reuters. Berbatov hefur samið um kaup og kjör og verður væntanlega tilkynntur sem nýr leikmaður Fiorentina seinna í dag. Dimitar Berbatov á sér ekki framtíð hjá Manchester United þar sem hann hefur spilað síðan að Sir Alex Ferguson gerði hann að dýrasta leikmanni í sögu félagsins árið 2008 en United keypti hann á 30,75 milljónir punda frá Tottenham. Berbatov er orðinn 31 árs gamall en fékk fá tækifæri í fyrra eftir að hafa orðið markahæsti leikmaður ensku úrvalsdeildarinnar tímabilið á undan. Dimitar Berbatov skoraði alls 48 mörk í 108 úrvalsdeildarleikjum með United. Þegar Ferguson keypti Robin Van Persie frá Arsenal varð endanlega ljóst að Berbatov væri ekki að fara spila neitt á Old Trafford í vetur og því fór hann að leita sér að nýju félagi. Berbatov verður bara fjórði Búlgarinn til þess að spila í ítölsku A-deildinni en hinir eru: Valeri Bojinov (Lecce, Fiorentina, Parma – 2001-02, 2003–06, 2009–12), Nikolay Iliev (Bologna – 1989-91) og Hristo Stoichkov (Parma – 1995-96).
Ítalski boltinn Mest lesið Ólafur fékk rautt spjald eftir sjö sekúndur í endurkomunni Handbolti „Þeir eru að fara í Evrópuleik bara til að halda klúbbnum á floti“ Fótbolti Óvænt hætt sem þjálfari af persónulegum ástæðum Handbolti Minnst 447 milljónir í boði fyrir Víkinga í kvöld Fótbolti Snýr aftur til uppeldisfélagsins frítt Fótbolti Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Enski boltinn Svali hættur sem formaður en stutt í val á arftaka Körfubolti Sá rautt eftir nokkrar sekúndur: „Maður lætur muna eftir sér“ Handbolti Slagsmál og allt á suðupunkti þegar Fenerbahçe sló út Lyon Fótbolti Íslenski hópurinn sem fer á Ólympíuleika ungmenna Sport Fleiri fréttir Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Til Forest fyrir átta milljarða eftir eitt mark á síðustu leiktíð Alvarez sagður íhuga skipti til Arsenal Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Nicolas Jackson á leið til Aston Villa Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Dagný orðin sendiherra West Ham Raheem Sterling ákærður Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Manchester City keypti liðsfélaga Hákonar á metfé Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Tottenham landar öðrum leikmanni frá Manchester City Jákvæður tónn og bjartsýni í viðræðum Liverpool við PSG Savinho til Tottenham frá Manchester City Arsenal telur sig geta náð samkomulagi um kaup á Alvarez Sjáðu sögulegt mark João Pedro í sigri Chelsea Cody Gakpo orðaður við Manchester City Harvey Elliott virðist ekki vera hluti af framtíð Liverpool Chelsea sigldi sigrinum heim eftir að hafa náð forystu eftir 30 sekúndur Watkins virðist vilja fara frá Aston Villa Newcastle að fá miðjumann Man. City Efast um Iraola: „Hvar eru stóru strákarnir“ Reknu vinirnir mætast í London Myndi ekki sofa á nóttunni: „Enn þá bara sama gamla Tottenham“ Liverpool og City muni ekki berjast um titilinn Sjáðu mörkin: Dramatík hjá Liverpool og City en hrun hjá Aston Villa „Verið að drekkja þeim í áhyggjum að þetta verði bara aftur sama sagan“ Emery bað Watkins um að útskýra fjarveru sína: „Það er spurning fyrir hann“ „Ástæðan fyrir því að ég elska fótbolta“ Sjá meira