Enska dagblaðið Liverpool Echo greinir frá því á heimasíðu sinni að Everton sé í viðræðum við Lilleström um kaup á íslenska landsliðsmanninum Birni Bergmann Sigurðarsyni.
Að sögn blaðsins voru útsendarar frá Everton á vellinum þegar Björn skoraði sigurmark Lilleström á lokamínútunni gegn Sogndal síðastliðinn sunnudag.
Anderlecht, Reading og Wolves hafa sýnt áhuga á Skagamanninum en Everton virðist skv. blaðinu hafa tekið frumkvæðið í kapphlaupinu. Kaupverðið á kappanum er talið vera í kringum þrjár milljónir punda eða sem nemur rúmum 600 milljónum íslenskra króna.
Everton í viðræðum við Lilleström um kaup á Birni Bergmann
Kolbeinn Tumi Daðason skrifar

Mest lesið


Þóra um hártogið í Bestu: „Þetta er bara botnhegðun“
Íslenski boltinn


Neymar hlustaði á hjartað sitt
Fótbolti





