Athugasemd úr Þingvallasveit um netaveiðar Karl Lúðvíksson skrifar 29. mars 2012 09:06 20 punda urriði úr Þingvallavatni Mynd af www.votnogveidi.is
Þessa grein fengum við frá Vötn og Veiði og beinist gegn grein sem var birt þar um netaveiðar í Þingvallavatni. Pistilinn er frá tveimur þeirra er voru myndaðir á báti við netaveiðar í Þingvallavatni á dögunum. Þeir eru ekki sáttir við grein VoV og skrifa: „Þann 25.mars s.l. birtist á vefsíðunni votnogveidi.is pistill undir yfirskriftinni: "Gamalt deilumál í deiglunni". Með pistlinum fylgja tvær myndir af báti með þremur mönnum á við veiðar á Þingvallavatni sem sendar voru inn af Kristjáni Páli Rafnssyni sem hafði verið á ferð við Þingvallavatn um síðustu helgi og þar rekið augun í "þessa veiðidóna" eins og hann orðar það. Annar okkar undirritaðra (Kolbeinn) var á bátnum ásamt syni sínum. Hinn ritari meðfylgjandi pistils heitir Jóhannes og er bróðir Kolbeins, ábúandi á Heiðarbæ og formaður Veiðifélags Þingvallavatns. Faðir okkar Sveinbjörn Jóhannesson er við stýrið á bátnum. Hann hefur borið ábyrgð á netaveiði í Þingvallavatni fyrir landi Heiðarbæjar 1 í rúm 60 ár og hefur notið virðingar fyrir einstaka eljusemi og alúð við þessa iðju en aldrei fyrr verið kallaður dóni fyrir að sækja björg í bú. Hann var einn þeirra bænda við Þingvallavatn sem stóð í nafni Veiðifélags Þingvallavatns fyrir mjög árangursríkum fiskræktaraðgerðum á 10. áratug síðustu aldar og í byrjun þessarar, í samvinnu við Veiðimálastofnun, Landsvirkjun og fleiri aðila. Þær aðgerðir fólust í því að veiða urriða í klak, ala upp seiði og sleppa þeim svo í vatnið. Sameiginlegt markmið þeirra sem stóðu að þessum aðgerðum var að efla vistkerfi vatnsins og um leið veiði í vatninu, hvort heldur er í net eða á stöng. Ekki er víst að sportveiðimenn geri sér almennt grein fyrir því að netaveiði hefur verið afar mikilvægur þáttur í lífsafkomu og atvinnumenningu fólks við Þingvallavatn um aldir. Slíku verður ekki kastað burt þó að það sé orðinn partur af sportinu hjá sumum að njósna um heiðarlegar netaveiðar og kalla þá sem þær stunda ljótum nöfnum. Meira á https://www.votnogveidi.is/frettir/almennt/nr/4167
Stangveiði Mest lesið Ein af vinsælustu flugum sumarsins Veiði Langá opnaði í morgun með tveimur löxum Veiði Svipaður fjöldi umsókna og 2011 Veiði Fleiri fréttir af opnunum laxveiðiánna Veiði Laxinn dreifir sér vel í Korpu Veiði 59 laxar úr Eystri Rangá í gær Veiði Innsend frétt úr Korpunni Veiði Melta söluskrána með hangikjötinu Veiði RISE fluguveiði- hátíðin fer fram 14. apríl Veiði Norðurá komin yfir 1000 laxa og góður gangur í Langá Veiði