Kastmyndband með Klaus Frimor Karl Lúðvíksson skrifar 13. mars 2012 14:14
Undanfarin tíu ár hefur Klaus Frimor starfað á Íslandi sem leiðsögumaður og sem kastkennari, en yfir vetrarmánuðina hefur Klaus verið með kastnámskeið víðsvegar í Evrópu. Klaus starfar hjá Guideline og er starf hans fólgið í hönnun á stöngum og línum og kynningu á þeim á sýningum í Evrópu og Ameríku. Vinnan og ástríðan fyrir veiði hafa sent Klaus um allan heim, ásamt því að birtast í hinum ýmsu veiðimyndum í gegnum árin. Þetta kast myndband er gefið út í samvinnu við Veiðiflugur og SR photo og er ætlað að styðja við kastnámskeiðin sem Klaus Frimor hefur haldið á íslandi undanfarinn ár. Kastnámskeiðin byrja 29 maí og standa til 15 júní. Upplýsingar um námskeiðin er hjá Veiðiflugum Langholtsvegi 111 í síma 5271060 eða á hilmar@veidiflugur.is Námskeiðin verða tvískipt, einhendu og tvíhendu námskeið. Hverju námskeiði fylgir DVD diskur með því sem farið er yfir, eins og gripið, köstin og kastvinkill ásamt öllum þeim fróðleik sem góðir flugukastarar þurfa að kunna.
Stangveiði Mest lesið Opið fyrir umsóknir hjá SVFR Veiði Helgarviðtal: Stangveiði, fótbolti og sauðfé Veiði Eyjafjarðará að ná sér eftir mikil skakkaföll Veiði Of mikið veitt í Soginu Veiði Tilkynning frá SVFR vegna Hítará Veiði Rjúpusnafsinn ómissandi hjá mörgum Veiði "Þetta er stærsti fiskur sem veiðst hefur í sumar“ Veiði Stóri sjóbirtingurinn mættur í Kjósina Veiði Róleg veiði en margir við bakkann Veiði Aðeins ein helgi eftir til rjúpnaveiða Veiði