RISE fluguveiði kvikmyndahátíð var haldin í fyrsta sinn á Íslandi í febrúar 2011. Hátíðinni var ótrúlega
vel tekið og uppselt var á sýninguna og það í fyrsta sinn sem hún var haldin. Í kjölfar þessara vinsælda
verður hátíðin haldin í annað sinn þann 10. mars 2012 í Bíó Paradís Hverfisgötu 54. Sýningin hefst kl.
20:00 en húsið opnar kl. 19:00.
Dagskráin í ár er ekki af verri endanum en eftirtaldar myndir, eða brot úr þeim verða sýndar:
Breathe.
Stuttmynd eftir R.C. Cone.
Hatch.
Nýjasta mynd Nick Reygaert hjá Gin-Clear Media sem framleiddi m.a. The Source seríuna.
A backyard in nowhere.
Nokkrir helsjúkir fluguveiðimenn ferðast til óbyggða Alaska í leit að Geddum sem þeir ætla að veiða á
flugu. Útkoman er stórkostleg.
Sipping dry.
Hér er mynd um þurrfluguveiðar og sýnir einhver alflottustu þurrflugutökur sem sést hafa á stóra tjaldinu.
Miðasala fer fram í Veiðivon, Mörkinni 6 og hefst kl. 11:00 þann 10. Febrúar n.k. en hægt er að panta miða með því að senda tölvupóst á netfangið rise@icelandangling.com og sækja miðana svo í Veiðivon. Pantanir verða að vera sóttar fyrir 9. mars n.k. að öðrum kosti verða þær seldar. Styrktaraðilar hátíðarinnar í ár eru: Veiðiþjónustan Strengir, Veiðikortið, Veiðivon, Bókamarkaður í Perlunni, Akureyri og Egilsstöðu, Hafið – Fiskiprinsinn og IG Veiðivörur. Frekari upplýsingar er hægt að finna á heimasíðu hátíðarinnar rise.icelandangling.com og á facebook síðu hátíðarinnar facebook.com/risekvikmyndahatid.
Tengiliður er Stjáni Ben – rise@icelandangling.com s: 867 5200
