Lesendum Vísis gefst nú kostur á að velja það sem hefur vakið athygli þeirra og aðdáun á vafri þeirra um vefheima síðustu misseri.
Fram til 25. janúar verður opið fyrir atkvæði almennings til Nexpo-vefverðlaunanna á slóðinni visir.is/nexpo. Þau verða síðan afhent með pompi og prakt á Sólon 27. janúar og verður verðlaunaafhendingin í beinni útsendingu hér á Vísi.
Í desember bauðst almenningi að senda inn tillögur til verðlaunanna hér á Vísi og var þátttakan framar vonum. Alls bárust um þrjú þúsund tillögur yfir bestu framlög Íslendinga til vefheima á síðasta ári. Dómnefnd fór yfir tillögurnar og tók mið af þeim þegar hún raðaði upp í sjálfar tilnefningarnar til verðlaunanna.
Tilnefningarnar má sjá hér fyrir neðan en við hvetjum alla til að taka þátt á visir.is/nexpo. Það er sáraeinfalt að taka þátt og tekur enga stund, aðeins þarf að velja einn tilnefndan í hverjum flokki og ýta á takkann neðst á síðunni til að kjósa.
TILNEFNDIR TIL NEXPO-VEFVERÐLAUNANNA 2011:
App ársins
Dómnefnd leitast eftir frumleika, notendaviðmóti og sniðugu forriti. Hvort sem er að ræða snjallsíma, spjaldtölvu eða í far/borðtölvur.
Já
Meniga
Airwaves
Leggja
Moogies
Herferð ársins
Dómnefnd leitast eftir herferð sem hefur haft bæði mikil áhrif og hefur tekist vel upp og verið starfrækt að megninu til á netmiðlum.
TM
Síminn - Villi á ferð um landið
Iceland wants to be your friend
Icelandair - Uppáhaldsborg Íslendinga
Besta sparnaðarráð Íslandsbanka
Leikur ársins
Dómnefnd fer eftir hönnun og skemmtanagildi.
Tiny Places
Moogies
Maxímús
Eve Online
Bjartasta vonin
Dómnefnd leitast eftir fyrirtæki/forriti/hugmynd sem á framtíðina fyrir sér. Einhver sem vert er að fylgjast með.
BetriReykjavik.is
Live project
Mobilitus
Plain Vanilla
SARWeather.com
Vefur ársins
Dómnefnd fer eftir hönnun og skemmtanagildi.
Datamarket
Stjörnur
Gogoyoko
Flick my life
Belgingur
Áhrifamesta fyrirtækið/vörumerki á samskiptamiðli
Hvaða fyrirtæki hefur staðið sig best með að ná til aðdáenda? Ekki er sérstaklega leitast eftir magni af aðdáendum, heldur nálgun og eftirfylgni.
Anna Rósa Grasalæknir
Frú Lauga
Nói Siríus
Iceland wants to be your friend
Síminn
Dómnefnd skipa Finnur Pálmi Magnússon, Rósa Stef, Þóranna K. Jónsdóttir, Þórarinn Hjálmarsson og Þorsteinn Már Gunnlaugsson. Nánar á visir.is/nexpo.
