250 g smjör (ekki smjörlíki)
250 g (3 dl) flórsykur
250 g (5 dl) hveiti
1 eggjarauða
nokkrir val- eða pecanhnetukjarnar
1. Bræðið smjörið við hægan hita, látið síðan storkna. Takið smjörskjöldinn ofan af en fleygið syrjunni (botnfallinu), skafið það af sem er laust neðan á smjörskildinum.
2. Setjið hveiti og flórsykur í skál, hnoðið smjörið saman við.
3. Fletjið út sm á þykkt, skerið síðan undan kringlóttu litlu glasi, þvermál um 4 sm. Einnig má búa til rúllu úr deiginu og skera í sm þykkar sneiðar.
4. Setjið smádropa af eggjarauðu ofan á hverja köku, leggið bita af val- eða pecanhnetukjarna á hann.
5. Hitið bakaraofn í 180 C, blástursofn í 170 C, setjið í miðjan ofninn og bakið í um 15 mínútur. Kökurnar eiga ekki að taka lit, þær eiga að vera alveg hvítar.
