Hvar, hvenær og hvernig skal stunda kynlíf Sigga Dögg skrifar 12. október 2011 20:00 Spurning 1 Ég er með smá áhyggjur sem tengjast kviðverk og kynlífi. Síðast þegar ég fór til kvensjúkdómalæknis var mér sagt að allt væri í lagi, en núna er ég farin að finna fyrir verkjum í ákveðnum stellingum og finnst best að gera „trúbbann" því þá finn ég minna til. Nú veit ég ekki hvort þetta er alveg eðlilegt eða hvort ég ætti að hafa áhyggjur og drífa mig í aðra skoðun? Svar:Það er erfitt að svara þér án ítarlegri upplýsinga, líkt og hvernig sársaukinn lýsir sér, en byggt á því sem þú gefur þá hef ég nokkrar tilgátur. Þú gætir verið með aftursveigt leg eða viðkvæman legháls. Þá eru sumar stellingar þægilegri en aðrar, sérstaklega þær sem þú getur stjórnað dýpt limsins inn í leggöng. Kvensjúkdómalæknir getur skoðað legu legsins. Ég hvet þig til að panta annan tíma og ef læknirinn finnur ekki skýringu á þessum verk gæti verið ráðlagt að panta tíma hjá kynfræðingi.Spurning 2Nokkrir hlutir hafa verið mér ofarlega í huga undanfarið og langar mig að vita þína skoðun á þeim málum. Mér hefur oft fundist skrítið hvað það er sjálfgefið að eftir hjónaband sé ekkert kynlíf. Eins og að um leið og hringarnir fari á fingurna hverfi tilhugalífið. Konum er sagt að fá sér titrara og mönnum að njóta strippbúlla. Einnig langar mig að vita hvaðan höfuðverkurinn mikli kemur. Það er oft fjallað um það í kvikmyndum að konan neiti kynlífi og beri fyrir sig höfuðverk, eða þá noti höfnunina sem refsingu. Enn fremur brandarinn um að ef maður er pirraður eða það gangi ekki eitthvað hjá honum þá sé konan ekki að „gefa honum nóg".Svar: Báðir „brandararnir" sem þú vísar í eiga sér stoð í raunveruleikanum og eru í raun tilvísun til þess sem oft gerist í langtímasamböndum. Þegar hiti lostans sem einkennir upphaf sambandsins kulnar þá fer kynlíf oft í fastari skorður. Báðir aðilar verða öruggari innan sambandsins og kynlíf fer að snúast um innileika og tjáningu á honum frekar en hömlulausan losta. Þegar sambandið vex og parið hefur sambúð og eignast fjölskyldu verður tími oft af skornum skammti, forgangsröðunin breytist og kynlífið gleymist. Oftar en ekki hallar á konuna þegar kemur að heimilisverkum og uppeldi og þreyta kemur fæstum í stuð og það getur því verið ein möguleg skýring á „höfuðverknum". Ósamræmi í tíðni og væntingum til kynlífs er eitt af helstu kynlífsvandamálunum sem pör leita eftir aðstoð við. Sumir kjósa gæði fram yfir tíðni og aðrir öfugt. Það er gömul mýta að halda að karlar kjósi tíðni fram yfir gæði eða að þeir neiti konunni ekki um kynlíf. Pör þurfa að koma sér saman um kynlíf; hvenær, hvar og hvernig. Það kann að hljóma órómantískt en þau pör sem ekki ræða þessi mál eru líkleg til að lenda í árekstrum.Sendu Siggu Dögg póst með spurningum eða óskum um umfjöllunarefni. Netfangið er kynlif@frettabladid.is Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Sigga Dögg Mest lesið Gríðarlegur velferðarábati með upptöku evru Dagur B. Eggertsson Skoðun Ég hélt að ég væri bara óvenju hrætt foreldri Heiðrún V. Ingudóttir Skoðun Siðferðilegt aflátsbréf - Um kerfisbundna notkun góðgerðarstarfs til að kaupa sér starfsleyfi Sigurður Sigurðsson Skoðun Dagur, bannað að plata! Ásdís Kristjánsdóttir Skoðun Vernd dýraheilbrigðis á Íslandi í ljósi reglna um frjálst flæði vöru á innri markaði ESB Erna Bjarnadóttir Skoðun Íslenska sumarveðrið dýrmæt auðlind? Gunnar Salvarssson Skoðun Við þurfum ekki að kaupa gervigreindarfullveldið að utan Hafsteinn Einarsson Skoðun Fullvinnsla heima, tollfrjálsir markaðir og raunhæf leið til að styrkja Krónuna og landsbyggðina Eggert Guðmundsson Skoðun Neyðin kennir nöktum Íslendingi að spinna Yngvi Ómar Sigrúnarson Skoðun Virðum jafnræði fólks og gerum það sem er best fyrir samfélagið í heild Gunnar Axel Axelsson Skoðun
Siðferðilegt aflátsbréf - Um kerfisbundna notkun góðgerðarstarfs til að kaupa sér starfsleyfi Sigurður Sigurðsson Skoðun
Vernd dýraheilbrigðis á Íslandi í ljósi reglna um frjálst flæði vöru á innri markaði ESB Erna Bjarnadóttir Skoðun
Fullvinnsla heima, tollfrjálsir markaðir og raunhæf leið til að styrkja Krónuna og landsbyggðina Eggert Guðmundsson Skoðun
Virðum jafnræði fólks og gerum það sem er best fyrir samfélagið í heild Gunnar Axel Axelsson Skoðun
Siðferðilegt aflátsbréf - Um kerfisbundna notkun góðgerðarstarfs til að kaupa sér starfsleyfi Sigurður Sigurðsson Skoðun
Vernd dýraheilbrigðis á Íslandi í ljósi reglna um frjálst flæði vöru á innri markaði ESB Erna Bjarnadóttir Skoðun
Fullvinnsla heima, tollfrjálsir markaðir og raunhæf leið til að styrkja Krónuna og landsbyggðina Eggert Guðmundsson Skoðun
Virðum jafnræði fólks og gerum það sem er best fyrir samfélagið í heild Gunnar Axel Axelsson Skoðun