Eikin alltaf vinsælust á íslensk gólf 29. september 2011 11:00 Þorgeir Björnsson, framkvæmdastjóri Stepps og Parkets og gólf í Ármúla.
Það eru alltaf örlitlar tískusveiflur í gólfefnum sem fylgja sveiflum í bílaiðnaði og fatatísku í litum. En þó má segja að við Íslendingar séum frekar varkárir þegar kemur að vali á gólfefnum. Eik er mikið tekin í parketi því hún gengur með flestum innanstokksmunum. Gráir og drapplitaðir tónar eru líka vinsælastir í gólfteppum. Fólk kaupir frekar stakar mottur í djörfum og sterkari litum,“ segir Þorgeir sem stofnaði fyrirtækin árið 2000. Stepp selur teppi og dúka og Parket og gólf selur parket, klæðningar og fleira. Einnig býður fyrirtækið upp á þjónustu við lagningu gólfefna. „Við gerum tilboð í sameignir í fjölbýlishúsum og útvegum flestar gerðir af gólfefnum. Viðskiptavinurinn getur fengið tilboð sér að kostnaðarlausu og án skuldbindinga. Við sendum mann á staðinn sem mælir gólfflötinn og fer yfir svæðið. Svo reiknum við út kostnað og útbúum lausn sem hentar á viðkomandi stað,“ útskýrir Þorgeir, en ekki henti sama gólfefnið alls staðar. „Það er gott að geta blandað gólfefnum saman, sumstaðar passar betur að hafa parket en annars staðar passar betur að hafa teppi, til dæmis upp á hljóðeinangrun. Við útvegum fagaðila sem sjá um alla verkþætti. Einnig sníðum við til mottur eftir óskum viðskiptavina úr þeim efnum sem við erum með,“ segir Þorgeir og nefnir sísalteppi og flosteppi með löngum hárum sem vinsæl efni í mottur undanfarin ár. En er erfitt að halda mottum og teppum hreinum sem hafa löng hár? „Nei, það er ekkert mál að hirða um þau, bara renna yfir með ryksugunni,“ segir Þorgeir. Í versluninni fást einnig hreinsiefni sem henta hverju gólfefni fyrir sig. Þorgeir segir parket einfaldara í þrifum. Óhreinindi og ryk felist auðveldar í teppum en með reglulegri ryksugun og góðum þurrhreinsiefnum er auðvelt að halda teppunum fallegum. „Í dag eru öll teppi framleidd þannig að í þeim lifa engar örverur. Fólk velur gjarnan parket vegna þess að það er auðveldara og einfaldara í lögn. Hvaða handlaginn einstaklingur sem er getur lagt smelluparketið frá Parador, en þar sem hljóðeinangrun skiptir máli verður umhverfið allt annað þar sem teppin eru notuð.“ Meðal vörumerkja sem fást hjá Stepp og Parketi og gólfi er þýska merkið Parador, Brintons og Danska merkið Danflor. Heimasíða verslunarinnar er www.parketoggolf.is
Sérblöð Mest lesið Í tjaldútilegu í 53 mánuði samfleytt og tekur fjöllin með í fundarherbergið Atvinnulíf Himinháar kröfur í galtóm bú veitingamanna á Akureyri Viðskipti innlent Engin bráð hætta á „bíólausu Íslandi“ Viðskipti innlent Rukkað því fólk hékk í rennunni Neytendur Skype heyrir brátt sögunni til Viðskipti erlent Fyrsti kaffibollinn minnir hann á að þrjú börn eru á heimilinu Atvinnulíf Fyrrverandi aðstoðarmaður skellir sér aftur í auglýsingarnar Viðskipti innlent Skattar á áfengi hæstir á Íslandi Viðskipti innlent Ekkert verður af frekari loðnuvertíð Viðskipti innlent Góa tekur yfir framleiðslu á Omnom Viðskipti innlent Fleiri fréttir Vetrarferð á verðlaunuðum rafbíl Iðnaðarhurðir sem henta íslenskum aðstæðum Plastkubbahús sem eru íslensk hönnun og framleiðsla Slippfélagið eflir þjónustu með gervigreind Sjá meira