Kalkúnar og fávísar fjölskyldur 16. september 2011 06:00 Rithöfundurinn og tölfræðingurinn Nassim Taleb setti fram áleitna dæmisögu í bók sinni The Black Swan frá árinu 2007. Setjum okkur í spor kalkúns sem verið er að ala upp til slátrunar. Á hverjum degi kemur til kalkúnsins vingjarnlegur bóndi sem gefur honum að borða. Með hverjum deginum sem líður verður kalkúnninn öruggari með tilveru sína og traust hans á bóndanum vex. Þar til svo bóndinn kemur einn daginn og slátrar kalkúninum. Hver er lexían? Jú, það er varasamt að búast við því að framtíðin verði eins og fortíðin. Taleb hefur síðustu ár verið óþreytandi í að bera út þennan boðskap enda margt til í þessu hjá honum. Hann hefur gagnrýnt nýtískuleg félags- og fjármálavísindi fyrir að reiða sig um of á hina svokölluð normaldreifingu eða aðrar skilgreindar líkindadreifingar. Veruleikinn er nefnilega oft flóknari en líkön segja til um og óvissa um framtíðina meiri en við myndum gjarnan vilja. Þess vegna eiga jafnvel hinir menntuðustu og reyndustu sérfræðingar að sýna auðmýkt í spádómum sínum og viðhorfum um framtíðina. Til er annað og skylt fyrirbæri sem höfundur hefur séð minna skrifað um. Það er sennilega einfaldast að lýsa því einnig með lítilli dæmisögu. Ímyndum okkur fjölskyldu sem tekur 100 prósenta húsnæðislán fyrir fáránlegu dýru húsnæði, draumahúsnæðinu. Svo dýru að það er algjörlega útilokað fyrir fjölskylduna að standa við greiðslur af láninu. Viðkvæði fjölskyldunnar er að þetta reddist. Að nokkrum mánuðum liðnum er vandinn strax orðinn ljós og fjölskyldan á leið í gjaldþrot verði ekkert að gert. En viti menn, fjölskyldan vinnur í Víkingalottóinu og getur greitt lánið upp á einu bretti eins og ekkert sé. Hver er lexían hér? Jú, þó að tíminn leiði í ljós framvindu sem annar taldi líklegri en hinn þá er ekki þar með sagt að skoðun hins fyrri hafi verið skynsamlegri. Viðhorfið að þetta reddist var ekki skynsamlegt jafnvel þótt það hafi reddast að lokum. Það er því ekki alltaf sanngjarnt né sérlega gagnlegt að skipta spádómum í þá sem rættust og þá sem féllu. Hvað þá að skipta skoðunum í réttar og rangar jafnvel þótt tíminn leiði í ljós framvindu sem annar taldi líklegri en hinn. Það sem skiptir öllu meira máli er að skipta spádómum í rökrétta og órökrétta og skoðunum í skynsamlegar og óskynsamlegar. Það er rökstuðningurinn sem skiptir máli. Þótt hlutirnir fari ekki eins og þú taldir líklegast, þá er ekki þar með sagt að þú hafir haft rangt fyrir þér. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Magnús Þorlákur Lúðvíksson Mest lesið Alræmdur faðir stígur fram Atli Heiðar Gunnlaugsson Skoðun Stóreflum námsefnisgerð í íslenska skólakerfinu Magnús Þór Jónsson,Steinn Jóhannsson Skoðun Hundrað milljarða loforð Dags Diljá Mist Einarsdóttir Skoðun Líffræðileg fjölbreytni og sveitarfélög Rannveig Magnúsdóttir,Ragnhildur Guðmundsdóttir,Sæunn Júlía Sigurjónsdóttir,Skúli Skúlason Skoðun Nei, ég vil ekki vinna með þér! Björn Leví Gunnarsson Skoðun Nokkur orð um einföldun eftirlits Ásmundur E. Þorkelsson,Hörður Þorsteinsson,Sigrún Guðmundsdóttir Skoðun Hvernig samfélag má bjóða þér? Ingileif Friðriksdóttir Skoðun Lýðræðislegt, sanngjarnt, gott Alex Leó Kristinsson Skoðun Launastefna Seðlabankans: Hverjir sitja eftir? Ingvar Freyr Ingvarsson,Sigrún Brynjarsdóttir Skoðun Fólkið fær að ráða för Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir Skoðun
Líffræðileg fjölbreytni og sveitarfélög Rannveig Magnúsdóttir,Ragnhildur Guðmundsdóttir,Sæunn Júlía Sigurjónsdóttir,Skúli Skúlason Skoðun
Nokkur orð um einföldun eftirlits Ásmundur E. Þorkelsson,Hörður Þorsteinsson,Sigrún Guðmundsdóttir Skoðun
Launastefna Seðlabankans: Hverjir sitja eftir? Ingvar Freyr Ingvarsson,Sigrún Brynjarsdóttir Skoðun
Líffræðileg fjölbreytni og sveitarfélög Rannveig Magnúsdóttir,Ragnhildur Guðmundsdóttir,Sæunn Júlía Sigurjónsdóttir,Skúli Skúlason Skoðun
Nokkur orð um einföldun eftirlits Ásmundur E. Þorkelsson,Hörður Þorsteinsson,Sigrún Guðmundsdóttir Skoðun
Launastefna Seðlabankans: Hverjir sitja eftir? Ingvar Freyr Ingvarsson,Sigrún Brynjarsdóttir Skoðun