Blómin sem uxu inni í stofu 2. maí 2011 00:06 Tölvuleikjakynslóðin er líklega með fyrirlitnustu kynslóðum síðari tíma (ef frá er talin klámkynslóðin en böðlar hennar virðast líka enn vera í undirbúningsvinnu hvernig leiða skuli hana á höggstokkinn). Litlu skítugu tölvuleikjabörnin með hrákadall á gólfinu eru hins vegar uppvaxin og orðin að stórum tölvuleikjabörnum því barnið í manni er einmitt það sem aldrei hverfur spili maður tölvuleiki. Það er svona á mörkunum að ég sé ekki utan lögsögu tölvuleikjakynslóðarinnar. Sumir telja að börnin þurfi að hafa verið vanin af bleiu fyrir framan tölvuskjáinn til að mega með réttu kalla sig hreinræktaða tegund en ég var orðin tíu ára þegar fyrsta Nintendo-sjónvarpsleikjatölvan var keypt en Rafbúð Sambandsins var með þeim fyrstu til að selja þær hérlendis. Hins vegar lagði ég mig alla fram um að vinna upp glataðan tíma og sat því með yngra systkini og nágrannabörnum fyrir framan frá sólarupprás til næturfrétta. Heimilið fylltist nefnilega af börnum allt niður í fjögra ára þegar tryllitækið kom í hús, börnum sem sátu þétt í sófanum og skiptust á um að nota fjarstýringuna. Þau voru aldrei með hor, alltaf með nammi og máttu vera heima hjá okkur frá morgni til kvölds. Og ég frábið mér uppfræðslu 68-kynslóðarinnar að það hafi verið meira gefandi og gaman að byggja kofa í Vogahverfinu. Þið hafið ekki hugmynd um stuðið við að troða frostpinnaspýtum inn í vídeótæki. Ég hef séð þessi börn sem voru einu sinni alltaf í tölvunni úti í hinum stóra heimi í dag og þetta eru allt snillingar. Snillingar sem mætti henda út í völundarhús í aldingarði í Japan og þeir myndu spjara sig. Þessi undrabörn þurfa hins vegar æ ofan í æ að þola niðurlægjandi tal gamla liðsins sem er eins og fiskur á þurru landi ef strætó breytir tímatöflunni. Og já, ég veit að þetta er ekki fallega sagt, en það er heldur ekki fallegt hvernig talað er niður til krakka í dag sem eru í tölvunni. Jú, þau kunna kannski ekki Eina krónu en þau eru oftar en ekki í skapandi og örvandi leikjum sem endar með því að þau fara að vinna hjá CCP og moka inn gjaldeyri. Útileikjakynslóðin lætur stundum eins og það sé varla þess virði að ræða við blessuð börnin í tölvuspilunum. Heilagri en vígt vatn í Betlehem af því hún fór út að leika. Ég er hins vegar viss um að Kiddi og systkini hans fimm í Árbænum, sem áttu eina Nintendo-tölvu á kjaft, er fólkið sem mun bjarga okkur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Getum við gert betur fyrir íslensk heimili? Berglind Guðmundsdóttir Skoðun Ofveiðin í ESB fyrir 500 árum Sigurjón Þórðarson Skoðun Bless tollfrjálsu Temu, Shein og Alibaba Jón Pétur Zimsen Skoðun Almyrkvinn 2026 – besta áhorfssvæðið gæti verið heima hjá þér Dagbjartur Kr. Brynjarsson Skoðun Óafsakanlegt, en ekki óleysanlegt Birgir Hrafn Birgisson Skoðun Temu-pakkar JP Zimsen eða alvöru hagsmunir Íslands Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun Kynslóðaskipti í ferðaþjónustu: Ástríða dugar ekki ein og sér. Díana Mjöll Sveinsdóttir,Sveinn Sigurbjarnarson Skoðun Lögreglan auglýsir eftir vilja löggjafans Elías Blöndal Guðjónsson Skoðun Tæknin kemur hratt - en ávinningurinn ekki sjálfkrafa Gísli Rafn Ólafsson Skoðun Að þýða texta er ekki það sama og að búa til námsefni Bogi Ragnarsson Skoðun
Kynslóðaskipti í ferðaþjónustu: Ástríða dugar ekki ein og sér. Díana Mjöll Sveinsdóttir,Sveinn Sigurbjarnarson Skoðun
Kynslóðaskipti í ferðaþjónustu: Ástríða dugar ekki ein og sér. Díana Mjöll Sveinsdóttir,Sveinn Sigurbjarnarson Skoðun