Þungum steinum velt 21. apríl 2011 06:00 Páskafríið er frábært. Fimm frídagar sem er hægt að ganga að sem vísum, ólíkt jólafríinu sem er mjög misjafnlega vinnuveitendavænt, og án streitunnar og gjafakapphlaupsins sem stundum fylgir jólahátíðinni. Nú er tækifærið til að njóta góðra stunda með vinum og fjölskyldu. En það er auðvitað ástæða fyrir því að við tökum okkur frí. Og ástæða til þess, alltént fyrir þá sem játa kristna trú, að íhuga tilgang hátíðahaldanna. Píslarsagan er allt um kring í dymbilviku; sagan af því hvernig Jesú var fagnað í upphafi viku þegar hann reið inn í Jerúsalem á asnanum á pálmasunnudag. Hvernig hann kvaddi lærisveina sína og var síðan svikinn og tekinn höndum, hvernig hann var niðurlægður og krossfestur. Að minnsta kosti fyrir þá sem nenna ekki að rífa sig upp á páskadagsmorgun til að mæta í messu er þessi partur af sögunni oft mest áberandi – í menningarviðburðum, passíusálmalestri, píslargöngum, bíómyndum og fréttum af fólki í útlöndum sem lætur festa sig upp á kross. Þegar fólk af yngstu kynslóðinni er spurt hvað hafi gerzt á páskunum er því krossfestingin gjarnan efst í huga, enda býsna dramatískur atburður sem auðvelt er að sjá fyrir sér. Það eru til ótal þekktar myndir af síðustu kvöldmáltíðinni og Kristi á krossinum, en við þekkjum færri upprisumyndir. Eina slíka, sem margir Íslendingar þekkja vel, er þó að finna í Dómkirkjunni í Reykjavík. Þar er Kristur ekki hið niðurlægða fórnarlamb, heldur sigurvegarinn sem hefur risið upp frá dauðum og velt hinum þunga steini frá grafarmunnanum. Sú mynd fangar kjarna páskanna; þeir eru sigurhátíð upprisunnar. Þá fögnum við sigri lífsins á dauðanum, ljóssins á myrkrinu, þess góða á illum öflum. Þess vegna eru páskarnir í raun enn mikilvægari hátíð í kristinni trú en jólin. Upprisuboðskapurinn, fyrirheitið um eilíft líf, er kröftugasta uppsprettatrúar á Krist. Það er ekki hægt að leyfa depurð yfir hörmungum píslarsögunnar, sem ná hámarki á föstudaginn langa, að ná tökum á sér nema að leyfa sér líka að gleðjast innilega á páskadag. Ekki aðeins yfir góðum endi á tvö þúsund ára gamalli sögu, heldur yfir þeirri leiðsögn sem hún veitir. Í trúna á Krist hafa margir sótt andlegan styrk og vissu fyrir því að þrátt fyrir erfiðleika, niðurlægingu og tap er sigurinn alltaf í augsýn. Við getum sótt okkur styrk til að velta þungum steinum, stuðning til að leyfa lífinu að sigra. Það er góð tilhugsun í rólegheitum páskafrísins. Gleðilega páska. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Ólafur Stephensen Mest lesið Halldór 23.8.2025 Halldór Heildstætt heilbrigðiskerfi – hagur okkar allra Alma D. Möller Skoðun Vanþekking eða vísvitandi blekkingar? Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun „I believe the children are our future…“ Karen Rúnarsdóttir Skoðun Andaðu rólega elskan... Ester Hilmarsdóttir Skoðun Er Akureyri að missa háskólann sinn? Aðalbjörn Jóhannsson Skoðun Skólaskætingur Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir Skoðun Ég vildi óska þess að ég hefði hreinlega fengið krabbamein Íris Elfa Þorkelsdóttir Skoðun Eldri borgarar – áhrif aðildar að Evrópusambandinu (ESB) Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Þéttingarstefnan hefur brugðist og Dóra breytir um umræðuefni Aðalsteinn Haukur Sverrisson Skoðun