Hreindýraundirföt eiginmannsins gleðja 1. nóvember 2011 00:01 „Eintóm gleði á fyrstu jólum frumburðarins," svarar Védís Hervör Árnadóttir sem á 6 mánaða son. „
Ég klæði mig í ullina og fer í rómantískan göngutúr um miðbæinn," segir Védís Hervör Árnadóttir tónlistarkona, sem eignaðist sitt fyrsta barn, Árna Stefán Bergmann, 14. júlí síðastliðinn, aðspurð út í undirbúning jólanna. „Aðalhefðin hefur þó verið prófatörn, tónlistargjörningar og handavinna. Ég er meira skapandi á þessum árstíma en venjulega." „Smákökubakstur með mömmu og systur minn er að festa sig í sessi." „Ég mála, sauma út og prjóna jólagjafir og ég er nú þegar byrjuð á jólagjöfunum fyrir þessi jól," segir hún. „Smákökubakstur með mömmu og systur minni er að festa sig í sessi, og svo hefðbundnir endurfundir innan stórfjölskyldunnar sem tvístrast út um allt yfir árið." Hvað kemur þér í jólaskap? „Hreindýraundirföt mannsins míns," svarar Védís brosandi áður en kvatt er.-elly@365.is
Jólafréttir Mest lesið Við eigum allt og því þurfum við ekkert Jól Gömul þula um Grýlubörn Jól Mikil og rík hefð fyrir jólaglögginni Jól Ó, Jesúbarn blítt Jól Jólatréð verður musteri minninga Jólin Daufblindir fá styrk Jól Aðventa fyrir prinsessur Jólin Uppsett en óreglulegt Jól Svið í jólamatinn Jól Gáttaþefur kom í nótt Jól