Þessa dagana er verið að leggja lokahönd á Söluskrá SVFR 2012. Mun hún berast félagsmönnnum í næstu viku en birtast á rafrænu formi á vefnum www.svfr.is fyrir helgi.
Mikilvægt er að félagsmenn séu með skráð rétt heimilisfang á félagalista. Ef einhver er í vafa um slíkt, þá er þeim sömu bent á að hafa samband við skrifstofu félagsins hið snarasta.
Umsóknarfrestur veiðileyfa mun vera til 5. janúar næstkomandi. Þá ber félagsmönnum að hafa skilað inn sínum óskum um veiðileyfi á svæðum félagsins.
