Landsliðsskórnir á hilluna þrátt fyrir að vera bara 24 ára gamall Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 4. nóvember 2011 20:00 Kevin-Prince Boateng. Mynd/Nordic Photos/Getty
Kevin-Prince Boateng hefur gefið það út að hann sé hættur að gefa kost á sér í landslið Gana en það er bara rúmt ár síðan að þessi 24 ára leikmaður skipti um FIFA-ríkisborgararétt til þess að geta spilað með Gana á HM í Suður-Afríku. Boateng náði að spila níu landsleiki og skora eitt landsliðsmark á þessum átján mánuðum en áður hafði hann leikið með 19 ára landsliði Þjóðverja. Eina markið kom í 2-1 sigri á Bandaríkjunum í 16 liða úrslitunum á HM í Suður-Afríku. Kevin-Prince Boateng er fæddur í Þýskalandi en móðir hans er þýsk og faðir hans er frá Gana. „Knattspyrnusamband Gana fékk bréf frá leikmanninum Kevin-Prince Boateng þar sem kom fram að hann gæfi ekki lengur kost á sér í landslið Gana," sagði í yfirlýsingu frá Knattspyrnusamband Gana. „Kevin gaf upp þá ástæðu að líkamlegt álag væri of mikið að spila bæði fyrir félagslið og landslið og það sé farið að koma niður á heilsu hans," stóð ennfremur í umræddri yfirlýsingu. Kevin-Prince Boateng hefur skoraði 3 mörk í 5 leikjum með AC Milan á þessu tímabili og þau komu öll í sama leiknum er hann kom inn á í hálfleik í 4-3 útisigri á Lecce. Fjarvera Boateng er áfall fyrir Gana sem er að fara taka þátt í Afríkumótinu í byrjun næsta árs. Miðjumennirnir Emmanuel Agyemang Badu, Kwadwo Asamoah, Andre Ayew, Sulley Muntari og að sjálfsögðu Michael Essien gefa hinsvegar enn kost á sér í landsliðið.
Ítalski boltinn Mest lesið Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Fótbolti Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Ólafur Ingi hættur með Blika Íslenski boltinn Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Fótbolti Hætti við Lakers sökum hroka Kobe Körfubolti Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið Fótbolti Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Enski boltinn Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Fótbolti Fleiri fréttir Framherjarnir þurfi að stíga upp Gæti farið í sex leikja bann Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Ólafur Ingi hættur með Blika Drottningin í fámennan hóp Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar Sjá meira