Margir félagsmenn SVFR þekkja til Skógár undir Eyjafjöllum en svæðið hefur átt undir högg að sækja eftir eldgosið í fyrra. Líkur eru á að seiðasleppingum verði hætt í ána.
Áin var á árum áður í sölu hér hjá SVFR við miklar vinsældir, en eftir eldgosið í Eyjafjallajökli hefur mikið af ösku borist í ána og lax úr seiðasleppingum ekki skilað sér. Samkvæmt frétt sem birtist á vefsíðunni Vötn og Veiði þá segist leigutaki árinnar ekki sjá fram á að áframhald verði á seiðasleppingum.
Mjög döpur veiði var í ánni í sumar, eða um 45 laxar.
Dapurlegar fréttir úr Skógá
