Holl sem var að veiðum í Gljúfurá í Húnaþingi lauk veiðum í dag með 9 laxa og missti annað eins. Töluvert af laxi var í ánni en þess má geta að nú er eingöngu veitt á flugu en það virðist ekki koma að sök því nokkrir af þessum löxum komu upp í "dæmigerðum" maðkastöðum að sumra mati.
En bónusinn í þessum veiðitúr var klárlega bleikjuveiðin í Hópinu. Hollið landaði yfir 70 bleikjum á fáum tímum og bleikjan var bókstaflega í torfum víða í vatninu. Mest var þetta 1-2 punda bleikja en nokkrar 4-5 punda voru þó í því sem tekið á land.
Það má minnast á að fyrir þá sem eru Veiðikortið þá er Hópið inní því og þetta því góðar fréttir fyrir þá sem eiga kortið og vilja komast í góða bleikjuveiði fyrir norðan.
Mikil bleikjuveiði í Hópinu
