Fótbolti

David Silva vill spila fyrir Chelsea

Rafnar Orri Gunnarsson skrifar
David Silva í leik með landsliðinu.
David Silva í leik með landsliðinu.
David Silva, leikmaður Valencia, hefur mikið verið í umræðunni þar sem bæði Chelsea og Manchester City eru á eftir leikmanninum. Hinn 24 ára gamli spánverji hefur ekki farið leynt með það að hann hafi mikinn áhuga á að spila með Chelsea næsta vetur. „Chelsea hefur sannað sig sem eitt besta félagslið Evrópu síðustu fimm ár. Félagið hefur kannski ekki sömu sögu og Real Madrid eða AC Milan en sannleikurinn er að þeir eru að búa til sína eigin sögu núna," sagði Silva. „Ef Chelsea heldur áfram á sömu braut þá er líklegt að hægt verði að bera liðið saman við Real Madrid í framtíðinni. Chelsea hefur frábæran leikmannahóp og leikmenn sem fara þangað vita það að ef þeir klæðast Chelsea treyjunni þá vinna þeir eitthvað." „Þeir eru með leikmenn eins og John Terry, Frank Lampard og Didier Drogba sem gætu spilað í hvaða liði sem er í heiminum og það væri heiður að fá að spila í sama liði og þeir," sagði Silva að lokum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×