Fótbolti

Alves vill framlengja við Barcelona

Henry Birgir Gunnarsson skrifar

Það er ekki langt síðan brasilíski bakvörðurinn Dani Alves var sagður á förum frá Barcelona þar sem ekkert gekk að ganga frá nýjum samningi. Einn leikur getur aftur á móti breytt miklu.

Alves var að vonum í mikilli sigurvímu eftir sigurinn ótrúlega á Real Madrid í gær og hann lýsti því yfir í sigurvímunni að hann vilji skrifa undir nýjan samning.

"Ég á tvö ár eftir af núverandi samningi og ef almættið vill þá mun ég framlengja þann samning. Það hentar mér best að vera hér áfram. Ég vil vinna fleiri svona leiki með Barcelona," sagði Alves.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×