Stefán Logi maður leiksins er Lilleström gerði jafntefli Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 17. maí 2010 10:17 Stefán Logi Magnússon spyrnir frá marki í leik með KR sumarið 2008. Mynd/Arnþór
Stefán Logi Magnússon var valinn maður leiksins hjá bæði Verdens Gang og Nettavisen þegar að Lilleström gerði 1-1 jafntefli við Brann á útivelli í norsku úrvalsdeildinni um helgina. Stefán Logi fékk sjö í einkunn hjá báðum miðlum en Björn Bergmann Sigurðarson var einnig í byrjunarliði Lilleström og lék allan leikinn. Hjá Brann var Birkir Már Sævarsson í byrjunarliðinu en Gylfi Einarsson kom inn á sem varamaður. Ólafur Örn Bjarnason sat allan tímann á bekknum hjá Brann. Stefán Logi er á meðal efstu manna í einkunnagjöf beggja miðla fyrir allt tímabilið til þessa. Hann er í 16.-21. sæti hjá VG með 5,33 í meðaleinkunn og 34. sæti hjá Nettavisen með 5,17. Heil umferð fór fram í norska boltanum í gær. Kristján Örn Sigurðsson lék allan leikinn fyrir Hönefoss sem tapaði fyrir Rosenborg á útivelli, 3-0. Þá voru þeir Bjarni Ólafur Eiríksson og Veigar Páll Gunnarsson í byrjunarliði Stabæk sem vann 3-1 sigur á Strömsgodset á útivelli. Pálmi Rafn Pálmason var ekki í leikmannahópi liðsins. Birkir Bjarnason átti möguleika á að skora í fimmta leik sínum í röð með Viking en liðið gerði markalaust jafntefli við Sandefjord. Birkir lék þó allan leikinn, rétt eins og Indriði Sigurðsson liðsfélagi hans hjá Viking. Stefán Gíslason var ekki í leikmannahópi liðsins að þessu sinni. Þá gerðu Odd Grenland jafntefli við topplið Tromsö á heimavelli, 1-1. Árni Gautur Arason lék allan leikinn í marki Odd Grenland. Lilleström er í fjórða sæti deildarinnar með 21 stig, sex stigum á eftir toppliði Tromsö. Viking er í sjötta sæti með nítján stig, Odd Grenland í áttunda með sautján, Stabæk í því níunda með sextán stig, Brann í þrettánda sæti með tíu stig og Hönefoss í fimmtánda og næst neðsta sætinu með átta stig.
Fótbolti á Norðurlöndum Mest lesið „Í fyrsta sinn sem við vinnum ósanngjarnt“ Íslenski boltinn Pínleg mistök Neuer gáfu hraðasta mark í sögu deildarinnar Fótbolti Íslenskir dómarar úti í kuldanum: „Þetta er auðvitað svekkjandi“ Fótbolti Líktu Álftanesi við Bayern München Körfubolti Aflýstu leik vegna skutlukasts Fótbolti Bakgarðsáskorunin: Þurfti að gefa í þegar maginn sagði til sín Sport Sjáðu sigurmark Guimaraes og markaveislu Chelsea Enski boltinn Manchester United - Tottenham 1-1 | Tíu menn Tottenham björguðu stigi Enski boltinn Uppgjörið: Fram - KR 1-2 | KR styrkti stöðu sína í öðru sæti Íslenski boltinn Óvænt truflun í Njarðvík Körfubolti Fleiri fréttir Messi og Suárez í stuði Íslenskir dómarar úti í kuldanum: „Þetta er auðvitað svekkjandi“ Sjáðu sigurmark Guimaraes og markaveislu Chelsea Aflýstu leik vegna skutlukasts „Í fyrsta sinn sem við vinnum ósanngjarnt“ „Þetta var alltaf mitt mark“ „Vonsviknir að ná ekki að nýta yfirburðina“ Pínleg mistök Neuer gáfu hraðasta mark í sögu deildarinnar Uppgjörið: Fram - KR 1-2 | KR styrkti stöðu sína í öðru sæti Mark tekið af Vinicius og fékk rautt spjald í staðinn Kristian Nökkvi og félagar nokkrum stigum frá toppnum Sigurganga Börsunga heldur áfram Svekkjandi tíu manna janftefli hjá Frey „Við ætlum að vinna rest“ Linta eftir fallið: „Enginn bjóst við þessu“ ,,Menn þurfa að bera meiri virðingu fyrir Stjörnunni en þetta” „Orðið algjört vígi að koma hérna“ Fiskaði rautt spjald í sigri Sjáðu enn eitt markið hjá Andra Lucasi Dramatík á Portman Road Manchester United - Tottenham 1-1 | Tíu menn Tottenham björguðu stigi Uppgjörið: Þór - ÍBV 1-0 | Felldu Eyjamenn og halda í vonina Stjarnan - KA 0-3 | Halda sér ofan fallsvæðis Valur - FH 3-5 | Öruggir eftir skrautlegan sigur Henderson í stuði í stórsigri Mikael lagði upp og meiddist en Logi í basli gegn Salah Magnað mark dugði fyrir sigri „Reynum að kveikja í hræðslu hjá þeim“ „Það er aldrei lognmolla í kringum Óskar“ Utan vallar: Það á enginn séns í kónginn Sjá meira