Fréttablaðið birti um helgina athyglisverðar niðurstöður úr nýrri
könnun Markaðs- og miðlarannsókna (MMR) á fylgi stjórnmálaflokkanna og hversu vel fólk treystir þeim til að hafa forystu í tilteknum málaflokkum. Sambærilegar kannanir hafa verið gerðar áður; í apríl í
fyrra og í febrúar síðastliðnum.
Niðurstaðan af samanburði á þessum könnunum er í stuttu máli sú að
bæði fylgi og traust stjórnarflokkanna tveggja hrynur frá því á
hveitibrauðsdögum vinstri stjórnarinnar í fyrra. Sjálfstæðisflokkurinn
sækir hins vegar mjög í sig veðrið.
Í apríl í fyrra sögðust þannig tæplega 60% kjósenda ætla að kjósa
annan hvorn stjórnarflokkinn. Þá sagðist jafnframt meirihluti svarenda
treysta öðrum hvorum stjórnarflokknum bezt til að hafa forystu í öllum
málaflokkunum þrettán, sem MMR spurði um. Nú hefur samanlagt fylgi
stjórnarflokkanna fallið í um 37% og í engum málaflokki segist
meirihluti treysta öðrum hvorum þeirra bezt til að fara með forystu.
Fylgi Sjálfstæðisflokksins hefur á sama tíma hækkað úr 30,8% í 40,4%
og hann nýtur mests trausts kjósenda í ellefu af þrettán málaflokkum.
Stjórnarflokkarnir hafa augljóslega glutrað úr höndum sér því mikla
tækifæri sem fyrsta hreinræktaða vinstri stjórnin fékk eftir hrunið.
Traust á Sjálfstæðisflokknum var þá í lágmarki og margir kenndu honum
um hvernig fór við stjórn efnahagslífsins. Forystumenn
stjórnarflokkanna töluðu þá digurbarkalega um að nú væri færi á að ýta
Sjálfstæðisflokknum og hugmyndum hans til hliðar í íslenzkum
stjórnmálum og það til frambúðar.
Á rúmlega hálfu öðru ári hefur þeim sem treysta stjórnarflokkunum til
að leiða endurreisn atvinnulífsins fækkað um meira en helming. Aðeins
tæpur fjórðungur kjósenda telur annan hvorn stjórnarflokkinn nú til
þess fallinn. Það vekur sömuleiðis athygli hversu mikið traust
stjórnarflokkarnir hafa misst í málaflokkum sem þeir fara með í
ríkisstjórninni, til dæmis VG í menntamálum, skattamálum,
umhverfismálum og samningum um Icesave og Samfylkingin í
heilbrigðismálum, efnahagsmálum og samningum við Evrópusambandið (þar sem flokkurinn hefur tapað forystunni í hendur Sjálfstæðisflokknum!).
Flestir telja þó enn VG bezt treystandi til að hafa forystu í
umhverfismálum og um rannsóknir á tildrögum bankahrunsins.
Niðurstöður könnunar MMR benda til að áhrif hrunsins á valdahlutföll
og traust á stjórnmálaflokkunum séu að byrja að ganga til baka. Það
grillir aftur í hið hefðbundna fjögurra flokka mynztur sem hefur
reynzt svo dæmalaust lífseigt í íslenzku stjórnmálalífi. Forystumenn
stjórnarflokkanna, sem hugðust breyta þessu til frambúðar, geta engum
um kennt nema sjálfum sér að hafa glutrað tækifærinu niður.
