Bækur
Önnur líf
Ævar Örn Jósepsson
Uppheimar
Málið sem þau fást við hér, brútalt morð á ungri konu, er ógeðfellt með eindæmum, ekki síst þar sem sama stúlkan hafði orðið fyrir hrottalegri hópnauðgun rúmu ári áður. Óhugnaðurinn vex enn við það að stúlkan er frænka Katrínar og fyrrverandi barnfóstra og Katrín því í raun beggja vegna borðsins, bæði rannsóknaraðili og aðstandandi. Inn í söguna fléttast búsáhaldabyltingin í janúar 2009 og árekstur anarkistanna á Austurvelli og máttarstólpa þjóðfélagsins, dópsala Lalla feita, ungbarnasund og uppgerð á Landrover, svo fátt eitt sé nefnt. Úr verður spennandi saga sem rígheldur athygli lesandans, vekur til umhugsunar og kemur sífellt á óvart. Annað málið sem löggurnar glíma við og splundrar hópnum er þó óleyst í bókarlok svo lesendur geta strax farið að láta sig hlakka til næstu sögu í beinu framhaldi.
Sagan flakkar fram og aftur í tíma, byrjar í maí 2010, fer síðan aftur til janúar 2009 og lýkur í október 2010. Þannig gefst lesendum færi á að kynnast fórnarlambinu og aðstæðum þess betur en oft gerist í sakamálasögum og láta sig því örlög hennar meiru varða.
Ævar Örn er flinkur krimmahöfundur, byggir sögurnar vel, kynnir bæði fórnarlömb og löggur í þaula af næmum mannskilningi, er gagnrýnin á samfélagið og skrifar betri og eðlilegri samtöl en nokkur annar íslenskur höfundur. Glæpamennirnir fá meira að segja oft eigin rödd, þótt samúðin með þeim sé eðlilega af skornum skammti og persónulýsingarnar því meira einhliða.
Önnur líf sver sig í ætt fyrri bóka Ævars Arnar, en ástæðan fyrir nauðguninni þykir mér dálítið ótrúverðug og skemma annars flott plott. Engu að síður er sagan fínasta glæpasaga, spennan byggð upp jafnt og þétt eins og vera ber og lausn gátunnar langt frá því augljós. Svo ekki sé nú minnst á hversu gaman það er að viðhalda kynnunum við gengið á Hverfisgötunni.
Niðurstaða: Fínn krimmi með flottu plotti og góðri persónusköpun. Rígheldur athygli lesandans, vekur til umhugsunar og kemur á óvart.