Jónas Guðni Sævarsson hefur skrifað undir samning við sænska liðið Halmstad til ársins 2012. Jónas er 25 ára en samkvæmt sænskum fjölmiðlum borgar félagið KR um 40 milljónir íslenskra króna fyrir leikmanninn.
Það er því ljóst að Jónas Guðni mun leika sinn síðasta leik fyrir KR, í bili allavega, þegar það mætir Larissa í Evrópudeild UEFA á fimmtudag. Hann mun síðan fara beint frá Grikklandi til Svíþjóðar.