Trezeguet er ofdekrað barn Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 13. mars 2009 18:00 David Trezeguet á æfingu með Juventus. Nordic Photos / AFP
Claudio Ranieri, knattspyrnustjóri Juventus, hefur sent David Trezeguet tóninn fyrir að gagnrýna sig í frönskum fjölmiðlum eftir leikinn gegn Chelsea í Meistaradeildinni í vikunni. Juventus og Chelsea gerðu 2-2 jafntefli sem dugði þeim síðarnefndu til að komast í fjórðungsúrslit keppninnar. Trezeguet, sem er 31 árs, gagnrýndi Ranieri eftir leikinn í samtali við L'Equipe fyrir að skipta sér út af. „Ég varð fyrir miklum vonbrigðum með ummæli hans," sagði Ranieri í samtali við ítalska fjölmiðla. „Svona ummæli eiga heima í búningsklefanum. En ef hann vill tjá sig í gegnum fjölmiðla mun ég gera slíkt hið sama." „Mér finnst eins og hann hafi svikið mig og brugðist mér. Hann var ekki að spila vel og ég þurfti á öðrum leikmanni að halda." „Trezeguet spilaði í 80 mínútur í mikilvægasta leik tímabilsins. Ég hef alltaf borið mikla virðingu fyrir honum en kannski er honum ekki sama sinnis. Það sem hann sagði var ótrúlegt - hann lét eins og ofdekrað barn." Ranieri var þá spurður hvort Trezeguet vildi fara frá félaginu. „Hann sagðist vilja fara undir lok tímabilsins þegar félagið var í B-deildinni. En þá vildi enginn að hann færi." „Við erum nú að reyna að endurbyggja lið okkar fyrir Evrópukeppnina. Við verðum að vinna með og fá leikmenn sem eru til í að taka þátt í því verkefni með okkur."
Ítalski boltinn Mest lesið Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Fótbolti Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Enski boltinn Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Íslenski boltinn Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Fótbolti Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Treyja Gylfa fór á milljón Íslenski boltinn Hver gæti tekið við af Carrick? Enski boltinn Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Íslenski boltinn Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Fleiri fréttir Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Sjá meira