Fram og TNS frá Wales hafa víxlað heimaleikjum sínum í rimmu liðanna í 1. umferð forkeppni Evrópudeildarinnar. Fyrri leikurinn verður nú á Laugardalsvelli.
Brynjar Jóhannesson, framkvæmdarstjóri Fram, segir að þetta hafi verið gert þar sem það hafi hentað betur að fara til Bretlands í seinni vikunni en þeirri fyrri.
Fyrri leikurinn fer fram þann 2. júlí en sá síðari í Wales viku síðar.