Raul varð kjaftstopp á Anfield 9. mars 2009 20:45 AFP
Framherjinn Raul hjá Real Madrid segist ekki eiga orð til að lýsa stemmingunni sem hann upplifði þegar hann kom fyrst á Anfield, heimavöll Liverpool. Hinn goðsagnarkenndi spænski framherji fær tækifæri til að spila þar í fyrsta skipti annað kvöld þegar lið hans Real Madrid sækir Liverpool heim í síðari leik liðanna í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar. Raul kom fyrst á Anfield fyrir nokkrum árum þegar hann ákvað að heimsækja félaga sinn Fernando Morientes sem þá lék með Liverpool. "Ég á ekki orð til að lýsa því sem ég upplifið þegar fór til Liverpool. Þetta er allt annað en ég á að venjast. Fólk er byrjað að syngja fyrir utan völlinn. Maður gengur í gegn um húsaþyrpingu og allt í einu er maður kominn á völlinn. Maður sér hann ekki fyrr en maður er kominn að honum. Áhorfendurnir, hávaðinn, ástríðan. Andrúmsloftið þarna er ótrúlegt og þetta var bara deildarleikur. Ég get ekki ímyndað mér hvernig er að vera þarna á Meistaradeildarleik - það er örugglega geggjað," sagði Raul í samtali við Times. Real bíður erfitt verkefni á Anfield eftir að hafa tapað 1-0 á heimavelli í fyrri leiknum. Raul segir að spænska liðið sé tilbúið með aðgerðaáætlun. "Planið er einfalt. Við þurfum að skora tvö mörk. Það var áfall að tapa heima en við munum ekki gefast upp. Við getum unnið Liverpool á Anfield," sagði gulldrengurinn, sem í vetur varð markahæsti leikmaður í sögu Real Madrid.
Meistaradeild Evrópu Mest lesið Segja Frey hafa logið að leikmönnum Fótbolti Serbarnir fá aldrei aftur að dæma Handbolti Hafi rætt við Rúnar og Börk og allir jafn undrandi Íslenski boltinn Freyr og Kortrijk segja belgíska blaðið ljúga Fótbolti Aron Einar snýr aftur til Katar Fótbolti Eyddi Instagram eftir kynferðisleg skilaboð Fótbolti Mörkin úr Bestu: Sjáðu perlur Gylfa og Ísaks Íslenski boltinn Ótrúleg bæting í Bakgarðshlaupinu: „Allt hægt ef viljinn er fyrir hendi“ Sport Sólveig keppti ólétt og á leið í þungunarrof Sport Fyrrum lögmaður Trump vill í enska boltann Enski boltinn Fleiri fréttir Guðmundur lagði upp í sigri á meisturunum Aron spilar með Joselu og Rodrigo Stefna stelpurnar okkar næst til Svíþjóðar og Danmerkur? Freyr og Kortrijk segja belgíska blaðið ljúga Aron Einar snýr aftur til Katar Stuðningsmenn gengu berserksgang og þjálfarinn fann fyrir því Segja Frey hafa logið að leikmönnum Haaland fær frí vegna jarðarfarar Eyddi Instagram eftir kynferðisleg skilaboð Mörkin úr Bestu: Sjáðu perlur Gylfa og Ísaks Hafi rætt við Rúnar og Börk og allir jafn undrandi Fyrrum lögmaður Trump vill í enska boltann Nasistaborði í Magdeburg til rannsóknar Þarf vernd lögreglu vegna reiði Rómverja Uppgjörið, viðtöl og myndir: Breiðablik - ÍA 2-0 | Afbragðsafgreiðsla Ísaks innsiglaði sigurinn „Algjör synd að við fengum ekkert út úr þessum leik“ Uppgjörið: Valur - Stjarnan 2-2 | Gylfi Þór jafnaði með stórkostlegu marki Hafa ekki heyrt frá Hearts: „Kom mér jafn mikið á óvart og þér“ Sjáðu ótrúlega sjö mínútna þrennu Smith og tvennu Nadíu Arnar sagður líklegur til að taka við í Skotlandi Grátleg niðurstaða Birnis og Gísla „Við Mosfellingar erum öðruvísi, við erum sérstakir“ Fertugasti leikur Glódísar og félaga í röð án taps Tímabilið búið hjá Rodri? Bara tvær fljótari en Sveindís Fyrirliðinn framlengir og tekur slaginn í Bestu deildinni Uppgjörið: Fjölnir - Afturelding 0-0 | Afturelding fer aftur á Laugardalsvöll Bandaríkjamenn að eignast Everton Leiðrétting löngu eftir EM: Þetta hefði átt að vera víti Stig tekin af liði Ásdísar og félagið gæti hætt Sjá meira