Vieira: Ég verð að fá að spila meira annars fer ég Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 2. október 2009 15:00 Patrick Vieira á æfingu með Inter. Mynd/aFP
Patrick Vieira lét hafa það eftir sér í dag að hann væri að förum frá ítölsku meisturunum í Inter Milan ef hann fengi ekki að spila meira með liðinu. Vieira hefur aðeins spilað í 194 mínútur á tímabilinu til þessa og var vegna þess ekki valinn í franska landsliðshópinn fyrir leiki á móti Færeyjum og Austurríki seinna í þessum mánuði. „Staða mín er að verða nokkuð flókin þar sem ég fæ ekki að spila. Ég vil samt ekki ákveða neitt fyrir desember," sagði Vieira í viðtali við franska íþróttablaðið L'Equipe. Esteban Cambiasso og Sulley Muntari hafa hingað til verið fyrstu kostir hjá Jose Mourinho, þjálfara Inter. „Ef málin þróast ekki í rétta átt þá þarf ég að taka nauðsynlegar ákvarðanir," sagði Viera og sagðist aðspurður þá eiga við að hann þyrfti þá að yfirgefa Inter í janúarglugganum. „Ef hlutirnir breytast ekkert þá fer ég frá Inter í janúar. Það kemur mér í slæma stöðu gagnvart landsliðinu ef að ég fær ekkert að spila," sagði Viera sem á að baki 107 landsleiki fyrir Frakka. Inter tekur á móti Udinese í ítölsku deildinni og það er almennt búist við því að Patrick Vieira þurfi þar að sætta sig við að sitja á bekknum.
Ítalski boltinn Mest lesið Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Enski boltinn Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Fótbolti Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Íslenski boltinn Bræður bættu stigamet pabba þeirra Körfubolti Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar Enski boltinn Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti „Guð morning!“ Enski boltinn Fleiri fréttir „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Sjá meira