Fótbolti

Eiður í byrjunarliði Barcelona

Elvar Geir Magnússon skrifar
Eiður Smári er í byrjunarliðinu hjá Barcelona en margir leikmenn fá hvíld í leiknum.
Eiður Smári er í byrjunarliðinu hjá Barcelona en margir leikmenn fá hvíld í leiknum.

Eiður Smári Guðjohnsen er í byrjunarliði Barcelona sem leikur gegn liði Alcoyano í spænska Konungsbikarnum. Leikurinn hefst klukkan 17:00 og er þetta síðari leikur þessara liða.

Eiður skoraði eitt af mörkum Barcelona í fyrri leiknum en hann fór 3-0. Margir leikmenn eru hvíldir í þessum leik í dag en Edmílson og Deco spila á miðjunni með Eiði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×