Misjöfn eru morgunverkin Kolbeinn Óttarsson Proppé skrifar 17. desember 2008 06:00 Dagur rís á ný og ég bý mig undir verkefni dagsins. Þar sem ég er í ríkisstjórn er annasamur dagur framundan. Það er fundur á eftir og við þurfum að fara betur yfir fjárlagafrumvarpið. Hvar eigum við að skera niður í þessari ólgutíð? Þó við höfum sagst ætla að efla menntun í kreppunni er nú ansi mikið sem fer í þann málaflokk og allsstaðar verður að skera niður. Og hvað með Vatnsveginn upp á 110 milljónir. Nei hann verður að vera. Úff, ýmist er maður skammaður fyrir að skera niður á Landspítalanum, sagður vega að rekstri hjúkrunarheimila háskólans. Jæja Þjóðkirkjan er í það minnsta sæmilega sátt. Best að fara að koma sér. Mikið vona ég að ekki verði mikið af fólki við Tjarnargötuna með þessi ótætis hróp. Það er þó alltaf hægt að nota bakdyrnar. Dagur rís á ný og ég bý mig undir verkefni dagsins. Það er ríkisstjórnarfundur í dag og við í lögreglunni verðum að vera til taks. Allir eru reiðir og líklega verður mótmælt þar aftur. Skelfilegt hvað þetta unga fólk er reitt. Það verður að skilja að ákveðnar reglur verða að gilda í samfélaginu. Án þeirra ríkti stjórnleysi. Ég skil samt vel að fólk sé reitt. Afborganirnar af húsinu mínu hafa tvöfaldast og hvernig á ég að borga af bílnum um næstu mánaðarmót? Og ekki veit maður hvað verður í málefnum lögreglunnar, það er enginn öruggur. Nú á meira að segja að fara að loka yfirfullum fangelsum. Ætli eigi að setja fangana líka á atvinnuleysisbætur? Jæja best ég komi mér svo við mætum á undan ráðherrunum. Dagur rís á ný og ég bý mig undir verkefni dagsins. Ekki að þau séu mörg. Það er borin von að ég fái aðra vinnu í bráð, ekki eins og ástandið er. Nú verða þessir ráðamenn að fara að gera eitthvað. Hvernig stendur á því að menn keyra í gegn hækkanir á hinum og þessum álögum en allt sem heitir stuðningur við almenning velkist um innan kerfisins dögum saman og bíður afgreiðslu? Þetta er ekki hægt. Ég vona að það mæti margir á eftir. Eina leiðin til að ráðamenn skilji þetta er að þeir heyri það milliliðalaust frá okkur. Frá fólkinu. Og kannski sýður upp úr, reiðin er slík. Ekki að það sé ætlunin. En það er eins og ekki allir átti sig á að þetta er vandinn okkar. Mikið væri því gaman ef hlustað væri á okkur. Jæja best ég drífi mig svo við komum á undan löggunum. Misjöfn eru morgunverkin í kreppunni. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Kolbeinn Óttarsson Proppé Mest lesið Börn þurfa úrræði, ekki innantóm loforð Ása Berglind Hjálmarsdóttir Skoðun Fokk, ég er með ristilkrabbamein! Matthías Freyr Matthíasson Skoðun Breyttur einkunnakvarði gerir námsmatið ekki skýrara Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun Var Stonehenge sláturhús? Ása Hlín Benediktsdóttir Skoðun Súri sannleikurinn um rakastjórnun - Þekkingin er til, en húsin leka samt enn Sigurður Sigurðsson Skoðun Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun Landsréttur gefur út óútfylltan tékka fyrir hvers kyns ofbeldi Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir Skoðun Lofthjúpurinn er ekki verðbólguspá – þegar prófessorinn villist út fyrir sitt sérfræðisvið Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun Það er alltaf til fé fyrir næstu framkvæmd—Hvenær ætlum við að læra? Vilhelm Jónsson Skoðun Mamma ég lofa Lára G. Sigurðardóttir Skoðun
Breyttur einkunnakvarði gerir námsmatið ekki skýrara Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun
Súri sannleikurinn um rakastjórnun - Þekkingin er til, en húsin leka samt enn Sigurður Sigurðsson Skoðun
Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun
Landsréttur gefur út óútfylltan tékka fyrir hvers kyns ofbeldi Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir Skoðun
Lofthjúpurinn er ekki verðbólguspá – þegar prófessorinn villist út fyrir sitt sérfræðisvið Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun
Breyttur einkunnakvarði gerir námsmatið ekki skýrara Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun
Súri sannleikurinn um rakastjórnun - Þekkingin er til, en húsin leka samt enn Sigurður Sigurðsson Skoðun
Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun
Landsréttur gefur út óútfylltan tékka fyrir hvers kyns ofbeldi Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir Skoðun
Lofthjúpurinn er ekki verðbólguspá – þegar prófessorinn villist út fyrir sitt sérfræðisvið Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun