Ranieri nýtur trausts Elvar Geir Magnússon skrifar 7. október 2008 22:00 Claudio Ranieri.
Jean-Claude Blanc, stjórnarmaður hjá Juventus, segir að þjálfarinn Claudio Ranieri hafi fullan stuðning hjá stjórn félagsins. Framtíð Ranieri hefur verið talin í lausu lofti vegna dapurs gengis hjá Juventus að undanförnu. Margir töldu að 2-1 tapið fyrir Palermo á heimavelli um síðustu helgi hefði verið síðasta naglinn í kistu Ranieri. „Við munum ekki skipta um þjálfara þar sem við höfum fulla trú á Ranieri. Cobolli Gigli, forseti, sagði það um helgina og ég ítreka það," sagði Blanc við ítalska sjónvarpið. „Ranieri var ráðinn til að stjórna liðinu til langs tíma og það verkefni heldur áfram. Við munum setjast niður með honum og starfsliði hans til að leita lausna á ástandinu. Við viljum að Juventus sýni það sama og liðið gerði í enda ágúst," sagði Blanc. Juventus hefur gengið illa að skora mörk en sú ákvörðun að kaupa Christian Poulsen frekar en leikstjórnanda á miðjuna hefur verið harðlega gagnrýnd af ítölskum fjölmiðlum. „Við sjáum alls ekki eftir því að hafa keypt Poulsen. Við íhuguðum kaupin á honum mjög vandlega og ég er viss um að hann muni sanna í næstu leikjum að hann hefur þau gæði sem við þurfum á miðjuna," sagði Blanc.
Ítalski boltinn Mest lesið Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Fótbolti Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Íslenski boltinn Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Enski boltinn „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Fótbolti Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Treyja Gylfa fór á milljón Íslenski boltinn Hver gæti tekið við af Carrick? Enski boltinn Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Íslenski boltinn Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Sport Fleiri fréttir Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Katla tryggði Fiorentina sigur „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Sjá meira