Í mat Bergsteinn Sigurðsson skrifar 11. júlí 2008 06:00 Nokkur sumur á tíunda áratugnum var ég svo heppinn að fá að forframast upp í starf skóflustráks í Pósti og síma. Að húka niðri í skurði með skóflu var ekki ónýtt starf, að minnsta kosti í minningunni. Best var að komast út á land, þá fékk maður dagpeninga og þar kynntist ég líka hinni alkunnu gestrisni bænda. Í eitt skipti vildi hins vegar svo óheppilega til að hæfileikar gestgjafans í eldhúsinu héldust ekki í hendur við gestrisnina. Við vorum tveir að legga nýja símalínu að sveitabæ í annarri Barðastrandasýslunni (látum hjá líðast að gefa uppi nákvæmari staðsetningu). Bóndinn á bænum var roskinn piparsveinn en vitaskuld elskulegheitin uppmáluð og heimtaði að við borðuðum með honum hádegismat. Illu heilli var ásýndin á eldhúsborðinu nóg til að reka hungrið á braut. Á boðstólum voru skaðbrenndustu og ólystugustu fiskibollur sem ég hef nokkru sinni augum litið, bornar fram með hálfhráum kartöflum og gulum djús, sem grunsamleg slikja flaut ofan á. Úr þessum aðstæðum var hins vegar ekki flúið. Eina ráðið var að láta sem ekkert væri heldur baða matinn í tómatsósu og stappa öllu saman þar til út varð svartrautt mauk og þræla því ofan í sig. Djúsinn sem skoluðum ösku- og kartöflubragðinu niður með bragðaðist næstum eins og vatn en guli liturinn varð eftir í glasinu. Að máltíðinni lokinni var boðið upp á lútsterkt, korgblandað kaffi, sem bragðaðis hreint ekki eins og nýleg uppáhelling. Þegar við vorum farnir að sjá fram á að geta snúið aftur til vinnu bað sá gamli okkur að hinkra í augnablik. Hann hljóp inn í búr en sneri aftur sigri hrósandi á svip, með hálffullan, hálfgagnsæjan plastbrúsa. Hann tók tappann af, rétti brúsann í átt að okkur og spurði hvort við vildum. Við reyndum að malda í móinn en en gerðum okkur fljótt grein fyrir að yrði engu tauti við hann komandi og fengum okkur sopa. „Bruggaðirðu þetta sjálfur," spurði ég inn á milli þess sem ég saup hveljur. „Nei," svaraði karlinn, fékk sér slurk og gretti sig. „Einhver andskoti sem ég fann í fjörunni." Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Bergsteinn Sigurðsson Mest lesið Er órökréttur skattafsláttur fyrir tekjuháa besta leiðin til að styðja barnafólk? Ragna Sigurðardóttir Skoðun Stalín á ekki roð í algrímið Halldóra Mogensen Skoðun Hvar værum við án þeirra? – Um mikilvægi Pólverja á Íslandi Svandís Edda Halldórsdóttir Skoðun Vókismi gagnrýndur frá vinstri Andri Sigurðsson Skoðun Borgin græna og ábyrgðin gráa Daði Freyr Ólafsson Skoðun Sorrý, Andrés Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Styrk stjórn gefur góðan árangur Ásthildur Sturludóttir Skoðun Fagleg forysta skiptir öllu - Af hverju eru ekki fleiri stjórnendur og leiðtogar að kveikja á perunni? Sigurður Ragnarsson Skoðun Diplómanám er ekki nóg – tími til kominn að endurskoða aðgengi fatlaðs fólks að háskólanámi Sigurður Hólmar Jóhannesson Skoðun „Bara ef það hentar mér“ Hákon Gunnarsson Skoðun
Er órökréttur skattafsláttur fyrir tekjuháa besta leiðin til að styðja barnafólk? Ragna Sigurðardóttir Skoðun
Fagleg forysta skiptir öllu - Af hverju eru ekki fleiri stjórnendur og leiðtogar að kveikja á perunni? Sigurður Ragnarsson Skoðun
Diplómanám er ekki nóg – tími til kominn að endurskoða aðgengi fatlaðs fólks að háskólanámi Sigurður Hólmar Jóhannesson Skoðun
Er órökréttur skattafsláttur fyrir tekjuháa besta leiðin til að styðja barnafólk? Ragna Sigurðardóttir Skoðun
Fagleg forysta skiptir öllu - Af hverju eru ekki fleiri stjórnendur og leiðtogar að kveikja á perunni? Sigurður Ragnarsson Skoðun
Diplómanám er ekki nóg – tími til kominn að endurskoða aðgengi fatlaðs fólks að háskólanámi Sigurður Hólmar Jóhannesson Skoðun