Menning

Gamalt píanó, ungur píanisti

Shuann Chai Kemur fram á tónleikum í Húsinu á Eyrarbakka annað kvöld.
Shuann Chai Kemur fram á tónleikum í Húsinu á Eyrarbakka annað kvöld.

Píanóleikarinn Shuann Chai heldur tónleika í Húsinu á Eyrarbakka annað kvöld kl. 20.30. Hún mun flytja verk eftir Wolfgang Amadeus Mozart, Franz Schubert, Ludwig van Beethoven og Frederic Chopin.

Shuann hefur spilað á tónleikum víðs vegar um heiminn, meðal annars í Englandi, Hollandi, Noregi og Kína. Hún hefur vakið eftirtekt á alþjóðavettvangi og fengið fjölda viðurkenninga fyrir frammistöðu í píanóleik. Hún er með mastersgráðu í tónlist frá New England Conservatory í Boston og er að ljúka við doktorsgráðu í tónlistarfræði við Brandeis University í Massachusetts.

Stærsta hluta ævi sinnar hefur Shuann búið í Bandaríkjunum en hún er nú búsett í Hollandi. „Ég flutti til Amsterdam til kynnast tónlistarlífinu í Evrópu," segir Shuann. „Ég hef alltaf haft áhuga á gömlum píanóum og hef spilað á mörg slík, bæði upprunaleg og eftirlíkingar. Hljóðfærin sem ég hef spilað á hafa spannað tímabilið frá árinu 1750 fram á 20. öld. Á þessum 250 árum hefur píanóið breyst afar mikið og sömuleiðis sú tónlist sem samin er fyrir hljóðfærið. Þetta vekur áhuga minn og ég vil gjarnan fræðast meira um þessa þróun."

Shuann er að heimsækja Ísland í fyrsta sinn og það var íslenskur unnusti hennar, Svanur Vilbergsson, sem vakti athygli hennar á Hornung og Möller píanóinu sem var smíðað árið 1871 og stendur í stássstofu Hússins á Eyrarbakka. Aðgangseyrir að tónleikunum er 500 kr. og eru allir velkomnir.

- vþ








Fleiri fréttir

Sjá meira


×