Blind og geld Karen D. Kjartansdóttir skrifar 18. nóvember 2008 06:00 í október var Davíð Oddsson seðlabankastjóri spurður að því í Kastljósi hvort til greina kæmi að hann léti af embætti. Því svaraði Davíð: „Það hefur enginn nefnt það við mig en ég hef bara svona séð þetta en ef ég teldi mig hafa unnið til þess þá væri það sjálfsagt." Albert Guðmundsson sagði af sér ráðherraembætti 1987 vegna greiðslna sem fyrirtæki hans fékk frá Hafskip og höfðu ekki verið taldar fram. Guðmundur Árni Stefánsson sagði af sér embætti heilbrigðisráðherra árið 1994 eftir harða gagnrýni á embættisfærslur. Árni Johnsen segir af sér þingmennsku 2001 og var í kjölfarið dæmdur fyrir auðgunarbrot. Þórólfur Árnason borgarstjóri tók á sig syndir olíufélagana árið 2004 og sagði af sér. Bjarni Harðarson sagði svo af sér þingmennsku eftir að hafa orðið á tæknileg mistök í bókstaflegri merkingu. Guðni Ágústsson fylgdi svo á eftir Bjarna og segir af sér formennsku í framsókn og þingmennsku vegna þess að hann taldi að endurreisn yrði ekki í flokknum án breytinga á forystu. Robert Z. Aliber, prófessor sem hefur sérhæft sig í kreppum, segir að hvergi í heiminum hafi jafn alvarleg bankakreppa riðið yfir og hér stefnir í. Staðan hafi verið með ólíkindum og efnahagur bankana var um það bil tólf sinnum meiri en landsframleiðslan. Ótrúlegt væri að enginn hefði gripið í taumana af þeim sem áttu að bera ábyrgð, svo sem eigendur, eftirlitsaðilar eða ráðamenn. Enginn hefði hlustað á varnaðarorð. Það hriktir í stoðum íslensks samfélags. Hvað gerir Geir Haarde? Hann stofnar nefnd um Evrópumál, leyfir sér að vefengja fullyrðingu fréttamanns um að þjóðin hafi orðið beðið ómælanlega álitshnekki með uppgerðarflónsku og dónaskap. Hann sér enga ástæðu til að segja af sér ekki frekar en Árni Mathiesen, Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra og Jónas Fr. Jónsson forstjóri fjármálaeftirlitsins. Allir líta þeir á sig sem áhrifamenn og leyfa sér að neita svara eða láta eins og svalir tappar í tónlistarblöðum. Ingibjörg Sólrún sér heldur enga þörf á afsögnum og finnst krafan jafngilda því og að kasta skylmingaþrælum fyrir ljón. Ætli við séum þá ekki ýðurinn sem vill brauð og leika. Ef til vill gæti Framsóknarflokkurinn náð fylgi í næstu kosningum með slagorðinu „Framsókn, flokkur sem axlar ábyrgð." Að minnsta kosti gerir það enginn annar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Karen Kjartansdóttir Mest lesið Ekki allir menn. En hvar eru allir karlarnir? Diljá Ámundadóttir Zoëga Skoðun Guð eða gæðavísar? Hvað er að gerast innan SÁÁ? Kristín I. Pálsdóttir Skoðun Ríkisstjórnin á að vita betur Indriði Einar Reynisson Skoðun Er ekki rjóminn bestur? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir Skoðun Þegar kjarabarátta kennara bitnar á börnunum Sigvaldi Egill Lárusson Skoðun Hver kennir okkur að hugsa? Sigrún Ólafsdóttir,Rannveig Björk Þorkelsdóttir,Ingibjörg Ágústsdóttir Skoðun Geta allir aukið tekjur? Jón Jósafat Björnsson Skoðun Kæru borgarfulltrúar Haraldur Þorgeirsson,Ásta Kristrún Ólafsdóttir Skoðun Lengi býr að fyrstu gerð Sigurður Páll Jónsson Skoðun Það er svo margt gott að gerast í skólunum – Skrifað á alþjóðadegi kennara Dagný Gísladóttir Skoðun
Hver kennir okkur að hugsa? Sigrún Ólafsdóttir,Rannveig Björk Þorkelsdóttir,Ingibjörg Ágústsdóttir Skoðun
Hver kennir okkur að hugsa? Sigrún Ólafsdóttir,Rannveig Björk Þorkelsdóttir,Ingibjörg Ágústsdóttir Skoðun