Skattalækkun skynsamleg Hannes Hólmsteinn Gissurarson skrifar 16. maí 2008 06:00 Fréttir berast nú af fjöldauppsögnum í bönkum og byggingarfyrirtækjum. Fátt er sárara en að missa starfið fyrirvaralaust. Við höfum öll samúð með því fólki, sem hefur orðið fyrir slíku áfalli, og vonum, að það finni fljótlega önnur störf. Sem betur fer er atvinnuástandið á Íslandi miklu betra en í ríkjum Evrópusambandsins, þar sem atvinnuleysi er stórfellt, einkum hjá ungu fólki. Tækifærin til að brjótast í bjargálnir eru nú miklu fleiri hér en fyrir röskum sextán árum, þegar ráðist var í hinar miklu breytingar í frjálsræðisátt. Það breytir því ekki, að fyrstu merkin um samdrátt eru að koma fram á venjulegu launafólki. Íslendingar gátu ekki búist við, að þeir slyppu einir þjóða við afleiðingar hinnar alþjóðlegu lánsfjárkreppu eða verðhækkanir á olíu og matvælum. Undir slíkum kringumstæðum er skynsamlegt að lækka skatta á launþega og fyrirtæki, því að það örvar neyslu og fjárfestingu, svo að störfum fjölgar á ný. Með skattalækkun er fé fært frá ríkinu, sem kann lítt með það að fara, og til einstaklinganna, sem nýta það miklu betur, annaðhvort til eigin ánægjuauka eða í sparnað og með honum fjárfestingu. Ríkisstjórnin hefur þegar tilkynnt, að tekjuskattur á fyrirtæki verði lækkaður úr 18% í 15% frá og með næstu áramótum. Það er skref í rétta átt, en vegna fyrirsjáanlegs samdráttar ætti að ganga enn lengra og lækka tekjuskattinn niður í 12%. Jafnframt ætti að lækka tekjuskatt á einstaklinga verulega, til dæmis um 2%. Þegar minnst er á skattalækkun, heyrist jafnan í úrtölumönnum. Þeir segja, að nú sé þensla og þess vegna sé skattalækkun ótímabær. Þetta er rangt af tveimur ástæðum. Þenslan er fyrirsjáanlega að snúast í samdrátt, svo að það, sem er óheppilegt í dag, verður heppilegt á morgun. Í öðru lagi er skattalækkun ekki aðallega hagstjórnaraðgerð, þótt vissulega megi með henni örva neyslu og fjárfestingu á næsta ári. Hún er tilfærsla á fé til þeirra, sem hafa aflað þess og eiga það skilið. Eitt brýnasta langtímaverkefni okkar er að minnka umsvif ríkisins. Skattheimta hér nemur nú röskum 40% af landsframleiðslu. Það er allt of hátt hlutfall. Þá spyrja úrtölumenn: Hvar vilja skattalækkunarsinnar nema staðar? Hvað er eðlilegt hlutfall? Ekkert endanlegt svar er til við þeirri spurningu, en til dæmis er skattheimta rétt yfir 30% af landsframleiðslu í Sviss, sem þykir mikið fyrirmyndarríki. Er það ekki hóflegt markmið? Enn segja úrtölumenn: Hvernig á ríkið að afla fjár til nauðsynlegra verkefna, ef skattar lækka? Svarið er einfalt. Til skamms tíma þurfum við ekki að hafa neinar áhyggjur af afkomu ríkissjóðs, því að íslenska ríkið er nánast skuldlaust. Tímabundinn fjárhagsvandi er því auðleysanlegur. Til langs tíma mun verðmætasköpun aukast við lægri skatta, svo að skatttekjur ríkisins munu hækka, eins og reynslan hefur margoft sýnt. Það er engin lausn á aðsteðjandi vanda að taka upp annan gjaldmiðil. Ráðstöfunarfé einstaklinga eykst ekki, þótt það sé skráð í evrum. Skuldir fyrirtækja lækka ekki, þótt þær séu skráðar í pundum. En afkoma einstaklinga og fyrirtækja batnar, ef opinberar álögur á þessa aðila léttast. Við bægjum atvinnuleysisvofunni best frá með myndarlegri skattalækkun. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Hannes Hólmsteinn Gissurarson Mest lesið Lygin um að á Íslandi sé nauðgunarmenning Huginn Þór Grétarsson Skoðun Enn og aftur, Alma Möller Arnar Helgi Lárusson Skoðun Davíð kvaddur Ámundi Loftsson Skoðun Ófrjósemi og andleg líðan Ástdís Pálsdóttir Bang Skoðun Í Evrópusambandinu eru réttindi verkafólks á forsendum markaðarins Ágúst Valves Jóhannesson Skoðun Hjúkrunarfræðingurinn sem skuldar meira, græðir helling og vill kíkja í pakka Haraldur Ólafsson Skoðun Kópavogsleiðin er merkilegt fyrirbæri Tinna Gunnur Bjarnadóttir Skoðun Ummæli Sönnu kalla á svör - hver er „freki karlinn“? Bergljót Gunnlaugsdóttir,Birna Gunnlaugsdóttir,Geirdís H. Kristjánsdóttir,Hallfríður Þórarinsdóttir,Júnía Líf Maríuerla Sigurjónsdóttir,Rósa Guðný Arnardóttir,Sigrún E. Unnsteinsdóttir Skoðun Heppni hjúkrunarfræðingurinn sem á að græða helling Berglind Guðmundsdóttir Skoðun Til hamingju, Kópavogsbúar – þið eigið von á góðu! Elísabet Sveinsdóttir Skoðun
Í Evrópusambandinu eru réttindi verkafólks á forsendum markaðarins Ágúst Valves Jóhannesson Skoðun
Hjúkrunarfræðingurinn sem skuldar meira, græðir helling og vill kíkja í pakka Haraldur Ólafsson Skoðun
Ummæli Sönnu kalla á svör - hver er „freki karlinn“? Bergljót Gunnlaugsdóttir,Birna Gunnlaugsdóttir,Geirdís H. Kristjánsdóttir,Hallfríður Þórarinsdóttir,Júnía Líf Maríuerla Sigurjónsdóttir,Rósa Guðný Arnardóttir,Sigrún E. Unnsteinsdóttir Skoðun
Í Evrópusambandinu eru réttindi verkafólks á forsendum markaðarins Ágúst Valves Jóhannesson Skoðun
Hjúkrunarfræðingurinn sem skuldar meira, græðir helling og vill kíkja í pakka Haraldur Ólafsson Skoðun
Ummæli Sönnu kalla á svör - hver er „freki karlinn“? Bergljót Gunnlaugsdóttir,Birna Gunnlaugsdóttir,Geirdís H. Kristjánsdóttir,Hallfríður Þórarinsdóttir,Júnía Líf Maríuerla Sigurjónsdóttir,Rósa Guðný Arnardóttir,Sigrún E. Unnsteinsdóttir Skoðun