Heimildarmynd um Sálina í kvöld 31. október 2008 07:15 Heimildarmynd Jóns Egils um Sálina hans Jóns míns verður frumsýnd í Háskólabíói í kvöld.
Heimildarmyndin Hér er draumurinn í leikstjórn Jóns Egils Bergþórssonar, sem fjallar um Sálina hans Jóns míns, verður frumsýnd í Háskólabíói í kvöld. Í myndinni, sem er í fullri lengd, er farið yfir 20 ára feril sveitarinnar. Gríðarlega fjölbreytt myndefni var notað við vinnslu myndarinnar ásamt gömlum viðtölum sem komu að góðum notum. „Það er komið ár síðan við byrjuðum að móta þetta og átta okkur á því hvernig mynd þetta ætti að vera," segir Jón Egill. „Síðan fór vinnan af stað í vor að útvega allt þetta myndefni, sem var alveg gríðarlegt." Þótt Sálin hafi verið afar vinsæl um árin hefur hún átt í innbyrðis vandræðum eins og kemur fram í myndinni. „Þótt það hafi gengið svona vel í músíkinni er þetta átakaband og þeir hafa margoft tekið sér hálfsárs leyfi, oft í kjölfarið á innbyrðisdeilum og óánægju. Við erum ekkert að draga fjöður yfir það. En það var mjög gaman að gera þessa mynd, sérstaklega út af því að þetta eru menn sem eru ekki alltaf að hjakka í sama farinu," segir Jón Egill. - fb
Mest lesið Hvers vegna fær Innrásin frá Mars núll í einkunn? Lífið Þríbætti tíma kærastans í einni stærstu spyrnukeppni Evrópu Lífið McConaughey glutraði niður tækifærinu í Titanic Lífið Fann lausn við verkjunum sem breytti öllu Lífið samstarf Orðin vön ferðamönnum í garðinum og fagnar komu þeirra Lífið Eftir þrettán ára nám fékk Saga bílpróf Lífið Stjörnulífið: „Þessi ætlar að ríða þessa Verslunarmannahelgina“ Lífið Oft upplifir fólk leiða og depurð eftir gott sumarfrí Áskorun Íhuga að skrifa bók um kaffihúsin á þúsund kílómetra hjólarúnti Lífið Stutt í að uppselt verði í heilt og hálft Lífið Fleiri fréttir Óvænt nöfn á könnu Köngulóarmannsins Óþekkjanleg stjarna Ingvar E. valinn besti leikarinn í Grikklandi Malkovich klipptur út úr Hinum fjóru fræknu Reykjavík Visual Effects tilnefnt til tveggja Emmy-verðlauna Sleðinn úr Citizen Kane orðinn næstverðmætasti leikmunurinn Severance sópar að sér Emmy-tilnefningum Bestu hlutverk Michaels Madsen: Óþokki með viskýrödd og uppáhald Tarantino Djöfullinn klæðist Prada á ný Sjá meira