Uggur Þórgunnur Oddsdóttir skrifar 8. júní 2008 06:00 Börn hræðast oft ótrúlegustu hluti. Sem krakki var ég til dæmis svolítið hrædd um detta ofan í klósettið og skolast niður, ég þorði ekki að snúa mér í of marga hringi í rólunni af ótta við að fá garnaflækju og á aðventunni var ég smeyk um að rekast á jólaköttinn á förnum vegi. Með auknum þroska hef ég lært að yfirleitt var þessi ótti algjörlega órökrænn og í dag hræðist ég fæst það sem olli mér martröðum í bernsku. Nú eru hins vegar farnar að renna á mig tvær grímur á ný. Ég var sjö ára gömul þegar þættirnir um Nonna og Manna voru sýndir í sjónvarpinu og hafði þá nýlega lokið við að lesa bókina Á skipalóni eftir Nonna. Nonnabækurnar þóttu mér aldrei skemmtilegar en frásögnin af baráttunni við hvítabirnina sem gengu á land við Skipalón var eftirminnileg og fékk hárin til að rísa. Myndræn framsetning sjónvarpsþáttanna jók síðan enn á óttann svo litla barnssálin var svolítið hvekkt eftir áhorfið. Búandi í næsta nágrenni við Skipalón og Möðruvelli var ég logandi hrædd við að vera á ferli utandyra af ótta við að rekast á illúðlega hvítabirni. Að lokum taldi ég mér trú um að frásögn Nonna í bókinni væri helber lygi sett í enn lygilegri búning í sjónvarpsþáttunum. Hvítabjörn myndi aldrei stíga á land í blómlegum byggðum Eyjafjarðar. Lokaþáttur sjónvarpsseríunnar sannfærði mig síðan enn frekar. Þar var eldgos látið ógna bænum á Skipalóni sem mér þótti arfavitlaust. Þótt ekki væri ég há í loftinu vissi ég nefnilega að slíkt gæti aldrei gerst enda óralangt í næsta eldfjall. Þetta stílfærða atriði renndi stoðum undir þá kenningu mína að hvítabjarnarsagan væri einnig uppspuni frá rótum og ég hugsaði ekki meira um bjarnarárásir þann veturinn. Og hvað gerist svo? Jú mörgum árum síðar þegar ég er ekki aðeins vaxinn upp úr óttanum heldur farin að hlæja að honum í þokkabót kemur í ljós að hann var alls ekki svo kjánalegur. Fyrst hvítabirnir eru farnir að spássera um í Skagafirðinum hefði ég vel getað rekist á einn slíkan í nágrenni Skipalóns í æsku. Ef ég væri sjö ára núna og nýbúin að horfa á þættina um Nonna og Manna myndi ég fela mig undir rúmi. Hvað næst? Eftir atburði vikunnar kemur ekkert mér á óvart. Ég á allt eins von á því að sjálfur jólakötturinn sjáist á vappi á næstunni. Þá mega menn mín vegna hafa byssurnar til reiðu. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Þórgunnur Oddsdóttir Mest lesið Börn þurfa úrræði, ekki innantóm loforð Ása Berglind Hjálmarsdóttir Skoðun Fokk, ég er með ristilkrabbamein! Matthías Freyr Matthíasson Skoðun Breyttur einkunnakvarði gerir námsmatið ekki skýrara Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun Var Stonehenge sláturhús? Ása Hlín Benediktsdóttir Skoðun Súri sannleikurinn um rakastjórnun - Þekkingin er til, en húsin leka samt enn Sigurður Sigurðsson Skoðun Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun Landsréttur gefur út óútfylltan tékka fyrir hvers kyns ofbeldi Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir Skoðun Lofthjúpurinn er ekki verðbólguspá – þegar prófessorinn villist út fyrir sitt sérfræðisvið Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun Það er alltaf til fé fyrir næstu framkvæmd—Hvenær ætlum við að læra? Vilhelm Jónsson Skoðun Mamma ég lofa Lára G. Sigurðardóttir Skoðun
Breyttur einkunnakvarði gerir námsmatið ekki skýrara Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun
Súri sannleikurinn um rakastjórnun - Þekkingin er til, en húsin leka samt enn Sigurður Sigurðsson Skoðun
Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun
Landsréttur gefur út óútfylltan tékka fyrir hvers kyns ofbeldi Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir Skoðun
Lofthjúpurinn er ekki verðbólguspá – þegar prófessorinn villist út fyrir sitt sérfræðisvið Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun
Breyttur einkunnakvarði gerir námsmatið ekki skýrara Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun
Súri sannleikurinn um rakastjórnun - Þekkingin er til, en húsin leka samt enn Sigurður Sigurðsson Skoðun
Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun
Landsréttur gefur út óútfylltan tékka fyrir hvers kyns ofbeldi Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir Skoðun
Lofthjúpurinn er ekki verðbólguspá – þegar prófessorinn villist út fyrir sitt sérfræðisvið Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun