Alveg til í Alien 5 10. júlí 2008 01:00 Hetjan í Aliens-myndunum Sigourney Weaver er alveg til í meira geimskrímslafjör.
Í OK-tímaritinu breska segist leikkonan Sigourney Weaver alveg vera til í að leika kvenhetjuna Ellen Ripley í enn einni Alien-myndinni. „Ég myndi alveg pottþétt gera það ef Ridley Scott, eða einhver álíka fær leikstjóri, myndi gera myndina og ef hugmyndin væri góð," sagði hún og bætti við að Ridley væri líka alveg til í slaginn. Sigourney var þrítug þegar fyrsta Alien-myndin var gerð árið 1979. Svo kom Aliens árið 1986, Alien 3 árið 1992 og Alien: Resurrection árið 1997. Sigourney segir að hún geti léttilega tekið að sér svona hlutverk, rétt eins og Harrison Ford og Sylvester Stallone sem léku Indian Jones, Rocky og Rambo á sjötugsaldrinum. Sigourney verður 59 ára í október, Stallone er nýorðinn 62 ára og Harrison Ford verður 66 ára á sunnudaginn.
Mest lesið McConaughey glutraði niður tækifærinu í Titanic Lífið Hvers vegna fær Innrásin frá Mars núll í einkunn? Lífið Fann lausn við verkjunum sem breytti öllu Lífið samstarf Þríbætti tíma kærastans í einni stærstu spyrnukeppni Evrópu Lífið Stjörnulífið: „Þessi ætlar að ríða þessa Verslunarmannahelgina“ Lífið Orðin vön ferðamönnum í garðinum og fagnar komu þeirra Lífið Eftir þrettán ára nám fékk Saga bílpróf Lífið Íhuga að skrifa bók um kaffihúsin á þúsund kílómetra hjólarúnti Lífið Edda og Sverrir hrepptu Gullbjölluna Bíó og sjónvarp Gítarleikari Sonic Youth með listasýningu á Íslandi Lífið Fleiri fréttir Óvænt nöfn á könnu Köngulóarmannsins Óþekkjanleg stjarna Ingvar E. valinn besti leikarinn í Grikklandi Malkovich klipptur út úr Hinum fjóru fræknu Reykjavík Visual Effects tilnefnt til tveggja Emmy-verðlauna Sleðinn úr Citizen Kane orðinn næstverðmætasti leikmunurinn Severance sópar að sér Emmy-tilnefningum Bestu hlutverk Michaels Madsen: Óþokki með viskýrödd og uppáhald Tarantino Djöfullinn klæðist Prada á ný Sjá meira