Handrukkarar lýðræðisins Dr. Gunni skrifar 24. janúar 2008 06:00 Lærdómur síðustu daga er þessi: Handrukkarar, þótt þeir láti stórkarlalega, eru vælandi vesalingar inni við beinið sem brotna saman í vörslu lögreglunnar. Stjórnmálamenn, þótt þeir láti eins og heilagir fulltrúar almennings, eru upp til hópa tækifærissinnaðir lúsablesar sem gera hvað sem er til að moka undir rassgatið á sjálfum sér. Hjá öðrum hópnum er drifkrafturinn peningar og dóp, hinum völd og áhrif. Ítrekað hefur komið í ljós í skoðanakönnunum að álit almennings á stjórnmálamönnum er lítið. Það sjá allir í gegnum þetta lið. Hafi álitið verið lítið má telja fullvíst að það er algjörlega hrunið eftir atburði síðustu daga. Fyrst þögðu Ingibjörg og Össur þunnu hljóði þegar stórvafasöm ráðning Þorsteins Davíðssonar var til umræðu. Hefðu þau ekki froðufellt snarvitlaus af bræði út af nákvæmlega sömu atburðum sitjandi hinum megin borðsins? Þú getur rétt ímyndað þér. Þetta er hlægileg tækifærismennska og prinsippleysi. Sama er með þennan Framsóknargaur sem kvartar yfir fatakaupum Björns Inga. Af hverju létu menn hann ekki fá nokkur pör af sokkum, tvær slaufur og jakkaföt? Þá myndum við ekki heyra múkk. Og svo er það uppreisn gamla góða Villa. Það var hryllileg sjón þegar þau stóðu þarna á mánudaginn eins og sljór her uppvakninga, starandi tómum augum út í loftið og fnæsandi sigri hrósandi með tvö A4 blöð af almennt orðuðum loforðum í sautján liðum, sem hefði þó verið hægt að stytta niður í eitt: Við ætlum að gera allt sem allir vilja að við gerum en þó sérstaklega það sem Ólafur F. vill. Hvaða rugl er þetta? Er ekki heil borg hérna full af ómönnuðum leikskólum, yfirfullum umferðaræðum og fúkkalyktandi brunagildrum sem þarf að redda einhvern veginn? Væri ekki nær að þetta lið gerði eitthvað af því sem það var kosið til að gera í stað þess að sitja endalaust á svikráðum í því eina augnamiði að koma sjálfum sér til valda og áhrifa? Ég segi það satt. Næst þegar allt þetta pakk byrjar að stilla sér brosandi upp á plakötum, lofandi öllu fögru, mun ég ganga um með lepp á báðum og þykk eyrnaskjól. Og ég mun ekki óhreinka mig á því að mæta niðurlútur í kjörklefann til þess eins að handrukkarar lýðræðisins láti mig fá einn umganginn enn. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Dr. Gunni Mest lesið 75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun Smekkvísi er ekki samningsbundin Ásgeir Guðmundsson Skoðun Þjáist þú af staðreyndagreddu? Þórdís Hólm Filipsdóttir Skoðun Misfarir í Mosfellsbæ Sólveig Anna Jónsdóttir Skoðun Gnexit Viðreisnar Bergþór Ólason Skoðun Af morðingjum og mannkostum Svala Magnea Ásdísardóttir Skoðun Myndin sem þú mátt ekki sjá Anna Laufey Stefánsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir Skoðun Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson Skoðun Þegar forstjórinn smíðar hugbúnaðinn sjálfur Ása Rún Björnsdóttir,Óttar Guðmundsson Skoðun Pólitískt fleipur landlæknis Bjarni Freyr Guðmundsson Skoðun
75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun
Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson Skoðun
75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun
Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson Skoðun