Ágústa hjá frönskum harðstjóra 19. ágúst 2007 04:00 Ágústa Eva varð vitni að ótrúlegu harðræði kennarans Gaultier í trúðaskólanum í París.
Þetta var mjög gaman og ákaflega forvitnilegt,“ segir leikkonan Ágústa Eva Erlendsdóttir en hún er snúin aftur heim eftir mánaðardvöl í frönskum trúðaskóla í höfuðborginni París. „Þetta er mjög sérstakur skóli því fólk getur verið þarna allt frá viku og uppí heilt ár,“ útskýrir Ágústa en námskeiðið snýst um að finna gleðina í að leika. Leikkonan varð þó vitni að furðulegum hlutum á meðan námskeiðinu stóð því kennarinn Philip Gaulier var hrikalegur harðstjóri og allt að því hálfgerður nasisti. „Hann braut nemendurna fyrst niður og tókst að græta stóran hluta bekksins,“ segir Ágústa en áréttar að hún hafi staðið fast á sínu og ekki leyft Gaulier að komast upp með neitt múður. „Hann beitti æði sérstökum námsaðferðum og fékk til að mynda aðra nemendur til að slá þá sem grátandi voru utan undir,“ segir Ágústa. Enda er það iðulega svo að sögn Ágústu að margir nemendur gefast hreinlega upp á harðræðinu og snúa aftur til síns heima eftir skamma dvöl. Frá París hélt leikkonan til Svíþjóðar og brá sér í gervi Silvíu Nætur á Gay Pride í Gautaborg. Að sögn Ágústu gekk allt vel og sýndu sænskir fjölmiðlar heimsókninni mikinn áhuga en í september byrjar sænska sjónvarpsstöðin TV4 sýningar á síðustu þáttaröðinni um Silviu Night Superstar.
Mest lesið Stjörnulífið: Seiðandi ofurskvísur og mæðradagurinn Lífið Ísrael sendir kvörtun til EBU Lífið Fréttamaður í næstlélegasta flokknum en Væb stórstjörnur Lífið Elskar fallega hælaskó og Prettyboitjokkó Lífið Aðal gellur landsins saman í epískri hestaferð Lífið „Ég varð stjörf af hræðslu“ Lífið „Og ég varð snargeðveikur“ Lífið „Ég þurfti að breyta hugsun, hegðun og tali“ Áskorun Næsta lag fjalli um hið íslenska gufubað Lífið Söngvakeppnin og stríðsrekstur Ísraels: „Ég er stolt af landinu mínu“ Lífið Fleiri fréttir Trump tollar kvikmyndir: „Eins og reiður, fullur pabbi sem ætlar að hætta við jólin“ Fyrsta íslenska myndin í Cannes Premiere-flokki Íslendingurinn á bak við tugmilljarða myndina: „Þetta er eiginlega fram úr öllum vonum“ Viðræður hafnar um framhald á Adolescence Rísandi stórstjarna og alvöru hjartaknúsari Bestu myndir Vals Kilmer og verstu floppin Þeir munu túlka Bítlana í myndum Sam Mendes Sjá meira