Sænski leikstjórinn og rithöfundurinn Ingmar Bergman lést á heimili sínu á eyjunni Faro í Svíþjóð í gærmorgun. Hann var 89 ára að aldri.
Bergman var þekktasta andlit sænskrar kvikmyndagerðar og leikhúslífs og dáður af kvikmyndagerðarfólki um heim allan. Hann var tilnefndur til níu Óskarsverðlauna, og unnu myndir hans þrisvar sinnum til verðlauna fyrir bestu erlendu kvikmyndina. Á meðal þekktustu mynda hans eru Sjöunda innsiglið, Fanny og Alexander og Vetrarljós.

Bergman fæddist í Uppsölum árið 1918. Faðir hans var prestur, en móðir hans hjúkrunarkona af yfirstétt. Bergman stundaði nám í bókmenntafræði við Háskólann í Stokkhólmi frá 1937-1940 en fékk fljótlega mikinn áhuga á leiklist, og síðar kvikmyndagerð. 1944 varð Bergman yngsti leikhússtjóri Svíþjóðar, þegar hann tók við starfi í Borgarleikhúsi Helsingjaborgar. Sama ár var kvikmyndin Hets frumsýnd. Þar skrifaði Bergman fyrsta kvikmyndahandrit sitt, en Alf Sjöberg leikstýrði. Í febrúar 1945 leit Kris dagsins ljós, en það er fyrsta myndin sem Bergman leikstýrði. Á ferli sínum leikstýrði Bergman yfir fjörutíu kvikmyndum og fjölda sjónvarpsmynda og leikuppsetninga, auk þess að skrifa handrit og bækur.
Af öllum kvikmyndum sínum var Bergman sjálfur ánægðastur með Vetrarljós, Persona og Cries and Whispers, þó að hann segði í viðtali árið 2004 að hann gæti ekki lengur horft á myndir sínar og yrði „þunglyndur" af því.
