Góða hjarta Dags í biðstöðu 22. júní 2007 01:15 Ryan Gosling Farinn af leikaralistanum á IMDB.com. „
Við erum að velta þessu fyrir okkur núna og ég reikna með að þetta ætti að skýrast á næsta hálfa mánuðinum," segir Þórir Snær Sigurjónsson, framleiðandi kvikmyndarinnar The Good Heart eftir Dag Kára Pétursson. Allt bendir nú til þess að upphaflegum leikarahópi með þá Tom Waits og Ryan Gosling í fararbroddi verði alfarið skipt út. Eins og komið hefur fram í Fréttablaðinu hefur nafn Ryans Gosling verið fjarlægt af leikaralista myndarinnar á vefsíðunni imdb.com. „Við lentum náttúrulega í svolitlu veseni með hann. Við vorum löngu búnir að tala við hann en svo er leikarinn tilnefndur til Óskarsverðlauna og tilboðum rignir yfir hann." Og því eru nú allar líkur á því að Gosling verði víðs fjarri. Hvað tónlistarmanninn Tom Waits varðar vildi Þórir lítið tjá sig. Ekki var hægt að skilja orð hans betur en svo að allt benti til að þess að Waits myndi líka yfirgefa skútuna. „Það er náttúrulega þessi dagskrá þeirra sem hefur flækt málin. Þeir hafa hvorugir viljað segja nei en við getum ekki haldið fjármagni víðs vegar í Evrópu í biðstöðu. Við erum búnir að bíða helvíti lengi eftir þeim." Þórir viðurkennir að þeir séu farnir að þreifa fyrir sér á öðrum vígstöðvum hvaða leikaramál varðar og að þau gætu farið á fullt á allra næstu dögum eða vikum. Myndarinnar er beðið með töluverðri eftirvæntingu enda hafa kvikmyndirnar Nói albínói og Voksne mennesker vakið mikla athygli á kvikmyndahátíðum um allan heim. Þá var handritið að The Good Heart verðlaunað á Sundance-hátíðinni.
Menning Mest lesið „Og ég varð snargeðveikur“ Lífið „Ég þurfti að breyta hugsun, hegðun og tali“ Áskorun „Þetta breytti því hvernig ég upplifi sjálfa mig og heiminn í kringum mig“ Lífið Krakkatían: Reikistjörnur, regnbogar og kengúrur Lífið Fjölmenni á sjötíu ára afmæli Kópavogs Lífið Bók skilað eftir 56 ára útlán Lífið Stjörnufans í sumarselskap Lífið Hugmyndir fyrir mæðradaginn Lífið Söngvakeppnin og stríðsrekstur Ísraels: „Ég er stolt af landinu mínu“ Lífið Fréttatía vikunnar: Páfakjör, poppstjarna og nýr kanslari Lífið Fleiri fréttir Trump tollar kvikmyndir: „Eins og reiður, fullur pabbi sem ætlar að hætta við jólin“ Fyrsta íslenska myndin í Cannes Premiere-flokki Íslendingurinn á bak við tugmilljarða myndina: „Þetta er eiginlega fram úr öllum vonum“ Viðræður hafnar um framhald á Adolescence Rísandi stórstjarna og alvöru hjartaknúsari Bestu myndir Vals Kilmer og verstu floppin Þeir munu túlka Bítlana í myndum Sam Mendes Sjá meira