Á Heilsustofnun NLFÍ er eingöngu boðið upp á hollan mat.
Heilsustofnun NLFÍ hefur verið starfrækt frá árinu 1955 og hefur frá upphafi verið heilsuverndar-, endurhæfingar- og kennslustofnun. Áhersla er lögð á fræðslu, líkamsþjálfun, slökun, hvíld og neyslu holls fæðis, til að stuðla að heilsusamlegu líferni, og er áætlað að um 2.000 manns dvelji á Heilsustofnuninni ár hvert.
Dvalargestum stendur fjölbreytt þjónusta til boða og hvort sem þeir dvelja í skemmri eða lengri tíma fá þeir fullt fæði. Áhersla er lögð á grænmæti, fiskrétti og boðið upp á heilsute með matnum, gert úr íslenskum lækningajurtum.
Jónas Björgvin Ólafsson, yfirkokkur staðarins, var svo vænn að elda pitsu fyrir lesendur Fréttablaðsins og eftirláta þeim uppskriftina, til að gefa sýnishorn af þeim réttum sem þar eru á boðstólum.
„Mér fannst alveg kjörið að búa til grænmetispitsu fyrir lesendur, þar sem stefnan er að bjóða upp á grænmetis- og fiskrétti,“ útskýrir Jónas. „Grænmetispitsan er mjög bragðgóð og að sama skapi vinsæl, ekki síður en holl, enda er hráefnið valið af mikilli kostgæfni og sósan sérlöguð á staðnum. Til marks um hollustuna er heilhveiti notað í deigið. Heilsustofnunin hefur það fyrir reglu að nota aldrei hvítt hveiti í matargerðina. Hér er nefnilega litið á eldamennskuna sem hluta af meðferðinni.“
Grænmetispítsa
Fyrir 10 manns
Deig:
500 g heilhveiti
500 g semolinamjöl
2 tsk. salt
20 g þurrger
2 msk. olía
650 ml volgt vatn
Aðferð:
Hnoðið saman í hrærivél í tvær mínútur og látið hefast í um það bil 20 mínútur.
Tómatbasilsósa:
2-3 hvítlauksrif
400 g tómatar í dós
2 msk. tómatpurre
½ bolli ferskt basil
salt og pipar
Aðferð:
Maukið allt saman í matvinnsluvél og smakkið til með salti og pipar.
Áleggið á piTSuna:
4 rauðir laukar í sneiðum
3 rauðar og grænar paprikur í sneiðum
1 st. zucchini
10 vel þroskaðir tómatar í sneiðum
10-20 sveppir
2 bollar 17% ostur (rifinn)
Gráðaostur eða fetaostur
Aðferð:
Fletjið deigið út og smyrjið með sósunni. Stráið næst helmingnum af ostinum yfir. Raðið öllu álegginu á pitsuna ásamt afgangnum af ostinum í lokin. Bakið síðan pitsuna við 230°C í 10-15 mín. Stráið grófsöxuðu klettasalati yfir pitsuna þegar hún hefur verið bökuð. Berið fram með hvítlauksolíu og ferskum parmegano-osti.
Maturinn er hluti meðferðar: Grænmetispítsa
