Brynhildur líklega í Lordi-myndinni 14. apríl 2007 10:00 Brynhildur Guðjónsdóttir þykir líklegust til hreppa hlutverkið í kvikmyndinni Dark Floors sem skartar sjálfri skrýmslasveitinni Lordi. „
Þetta var ein skemmtilegasta áheyrnarprufa sem ég hef verið með,“ segir Alexía Björg Jóhannesdóttir hjá Reykjavík Casting en hún sá um að prófa leikkonur fyrir finnsk/íslensku hryllingsmyndina Dark Floors: Lordi Motion Picture. Eins og fram kom í Fréttablaðinu fyrir skömmu verður íslensk leikkona í aðalhlutverkinu en meðframleiðendur myndarinnar eru þeir Júlíus Kemp og Ingvar Þórðarson hjá Kvikmyndafélagi Íslands. „Þær komu hingað og öskruðu úr sér lungun og samstarfsfólk mitt hélt að ég væri hreinlega að reyna að drepa þær,“ bætir hún við. Alexía vildi ekki gefa upp hversu margar leikkonur kæmu til greina fyrir hlutverkið en samkvæmt heimildum Fréttablaðsins hlutu níu leikkonur náð fyrir augum Alexíu en sex þeirra koma hvað sterkast til greina. Meðal þeirra eru þær Laufey Elíasdóttir sem sló í gegn í Blóðböndum, Ingibjörg Stefánsdóttir, Birna Hafstein og Haldóra Malin auk Caroline Dalton. Samkvæmt upplýsingum Fréttablaðsins er þó helst veðjað á að Brynhildur Guðjónsdóttir hreppi hnossið en hún þótti fara á kostum í prufunum. Þá er myndin leikin á ensku en Brynhildur lærði sín fræði í Bretlandi og þykir mikil tungumálamanneskja. Dark Floors verður mikil auglýsing fyrir þá leikkonu sem verður valin en hún verður fyrst kynnt á Cannes-kvikmyndahátíðinni í maí. Þá verður hún markaðssett eins og háttur hefur verið á með Hollywood-kvikmyndir en samkvæmt kvikmyndavefnum imdb.com er ráðgert að hún verði jólamyndin í Finnlandi. Tökur fara fram í heimabæ finnsku skrímslasveitarinnar, Oulu. Íbúar bæjarins bíða spenntir eftir að fá þessa bestu syni bæjarins í heimsókn til sín og ætla að stjana við aðkomumennina.
Mest lesið Nígerísk hjón reisa glerkastala í Kjós og flytja inn tonn af blómum til að gifta sig aftur Lífið Nígerískt stjörnubrúðkaup í Hallgrímskirkju Lífið Hver er Endakallinn frá Ibiza? Lífið Fyrrverandi eiginmaður Kelly Clarkson látinn Lífið „Magnað innra ferðalag“ að horfast í augu við saklausa barnið í sér Lífið Fann lausn við verkjunum sem breytti öllu Lífið samstarf Bay segir skilið við Smith Lífið Hvers vegna fær Innrásin frá Mars núll í einkunn? Lífið Hver dáleiðsla er spennandi og ófyrirsjáanlegt ferðalag Lífið samstarf McConaughey glutraði niður tækifærinu í Titanic Lífið Fleiri fréttir Óvænt nöfn á könnu Köngulóarmannsins Óþekkjanleg stjarna Ingvar E. valinn besti leikarinn í Grikklandi Malkovich klipptur út úr Hinum fjóru fræknu Reykjavík Visual Effects tilnefnt til tveggja Emmy-verðlauna Sleðinn úr Citizen Kane orðinn næstverðmætasti leikmunurinn Severance sópar að sér Emmy-tilnefningum Bestu hlutverk Michaels Madsen: Óþokki með viskýrödd og uppáhald Tarantino Djöfullinn klæðist Prada á ný Sjá meira