Hilmar með Draumalandið á svið 24. janúar 2007 05:00 Hermóður og háðvör hefur ráðist í það mikla verkefni að siðsetja Draumalandið og er frumsýning fyrirhuguð í byrjun mars. MYND/Heiða
Hilmar Jónsson hefur skrifað leikgerð upp úr Draumalandi Andra Snæs Magnasonar. Verkið verður frumsýnt í Hafnarfjarðarleikhúsinu í mars. „Slungið að sviðsetja Draumalandið? Auðvitað er það. Mjög spennandi verkefni. En í sjálfu sér, þegar þú tekur svona texta eins og hans Andra Snæs og rennir honum í gegnum manneskjur þá verður hann dramatískur,” segir Hilmar Jónsson leikstjóri. Hilmar hefur að undanförnu unnið við að skrifa leikgerð upp úr Draumalandi Andra Snæs Magnasonar. Hermóður og Háðvör – Hafnarfjarðarleikhúsið stefnir að því að setja upp sýningu í byrjun mars sem byggir á bókinni. Settur hefur verið saman leikhópur sem í eru Erling Jóhannesson, Sóley Elíasdóttir, Magnea Valdimarsdóttir, Sólveig Arnarsdóttir, Guðmundur Ingi Þorvaldsson og Hjálmar Hjálmarsson. Tónlist og hljóðmynd verður í höndum Hilmars Arnar Hilmarssonar, leikmyndateiknari er Ásdís Sif Gunnarsdóttir myndlistarmaður og lýsingu annast Garðar Borgþórsson. Svo virðist sem för Draumalands Andra sé hvergi lokið í samfélagsumræðunni og Hilmar segir að leikhúsið ætli að bjóða sig og sitt fram í þeim efnum. Þorfinnur Guðnason kvikmyndagerðarmaður vinnur nú að kvikmynd sem byggir á bókinni. Hefðu menn ætlað að það reyndist erfitt verk að vinna bíó upp úr bókinni, sé litið til bygginar hennar og efnis, þá eiga menn ef til vill erfiðara með að sjá fyrir sér bókina á leiksviði. Hilmar segir það alveg rétt. En þó bókin sé ekki dramatísk í byggingu þá er efni hennar sannarlega dramtísk. „Þegar umræðan er ekki alveg rökrétt og vitræn, þegar búið er að sá í brjóst og hjörtu manna ótta við það sem gerist ef ekki er virkjað. Og spurt: Ertu á móti rafmagni? Ertu á móti hagvexti? Eigum við öll að fara á fjöll og týna fjallagrös? Þá er efniviður í dramatíska framsetningu.” Leikfélagið vinnur leikgerð í samráði við Andra Snæ þó svo að hann hafi fyrir sína parta lýst því yfir að hann treysti Hilmari og hópnum til að koma með sína úrvinnslu á bókinni. „Minn vinkill er... sko, bókin heitir „Draumalandið – sjálfshjálparbók handa hræddri þjóð” og við, í leikhúsinu, erum að skoða þessa hræddu þjóð. Hver er hún og við hvað er hún svona hrædd?” Hilmar lítur svo á að Draumalandið sé fyrirtaks útgangspunktur í slíkum bollaleggingum, þar sem Andri skoði inn í samfélagið, skoði orðræðuna sem er uppi og andæfi því sem hann er ósammála, komi fram með mótrök og nýjar hugmyndir. „Dregur fram hvernig umræðan lendir á villigötum, fólk dregið í dilka, hlutir slegnir út af borðinu með fraseringum sem fáir skilja og er tortrygginn í garð þeirra sem rekið hafa þessa stóriðjustefnu.”jakob@frettabladid.is
Mest lesið Gamli er (ekki) alveg með'etta Gagnrýni Opnar sig um stormasamt hjónaband á nýju plötunni Tónlist Ætlar að ná styrk í fingurna til að geta greitt dótturinni Lífið Fellsmúlinn prýðir Instagramfærslu Justin Bieber Lífið Bieber gefur út óvænta plötu Lífið Upprunalega Birkin taskan seld á rúman milljarð Tíska og hönnun Eftirlætis náttúruperlur Ásu Steinars Lífið Borgin býður í tívolíveislu Tónlist Ragga Holm og Elma trúlofaðar Lífið Pfúff: Fjölskyldufrí og systkinin endalaust að rífast Áskorun Fleiri fréttir Bestu hlutverk Michaels Madsen: Óþokki með viskýrödd og uppáhald Tarantino Djöfullinn klæðist Prada á ný Grindavík sigursæl erlendis Skapandi sumarstarf varð að þætti á laugardagskvöldum á RÚV Næsti Bond undir þrítugu og þrír efstir á blaði Villeneuve leikstýrir næstu mynd um James Bond Ólafur Darri og Hera Hilmars halda áfram að heilla heiminn Amatörar, hvalfirskur bóndi og barátta við borgina verðlaunuð Sjá meira