Ljóðabókaflóð Bjarts 25. október 2006 11:15 Steinar Bragi, sem sendir brátt frá sér bókina Hið stórfenglega leyndarmál heimsins, hefur leika í kvöld.
Hjá Bjarti hafa nýlega komið út þrjár glæsilegar ljóðabækur, sannkallað ljóðabókaflóð í lok október. Af því tilefni verður haldin ljóðahátíð á Næsta bar, Ingólfsstræti 1a, miðvikudagskvöldið 25. október, klukkan 20.00, þar sem lesið verður upp úr þessum nýju dúndurbókum. Ingunn Snædal les úr bók sinni Guðlausir menn - hugleiðingar um jökulvatn og ást, sem hlaut bókmenntaverðlaun Tómsar Guðmundssonar nú í október og sem Silja Aðalsteinsdóttir kallaði "dúndurbók" í Lesbók Morgunblaðsins um helgina. Óskar Árni Óskarsson les úr bókinni Loftskip, en Óskar Árni hlaut fyrr á þessu ári Ljóðstaf Jóns úr Vör. Sérlegur fulltrúi Bjarts mun lesa upp úr bók Vésteins Lúðvíkssonar; Sumir láta einsog holdið eigi sér takmörk, en Vésteinn er búsettur í Asíu. Tveir skáldsagnahöfundar Bjarts taka þátt í hátíðinni, ólmir af spenningi yfir væntanlegum eigin upplestrum því bækurnar þeirra eru rétt ókomnar úr prentun: Steinar Bragi, sem sendir í haust frá sér skáldsöguna Hið stórfenglega leyndarmál Heimsins, ætlar að hefja leika með léttum lestri úr eldri ljóðum sínum og sérlegur kynnir er hinn góðkunni útvarpsmaður, og höfundur skáldsögunnar Undir Himninum, Eiríkur Guðmundsson . Mun hann bjóða gesti velkomna og kynna skáldin til leiks. Verður þetta stutt, hnitmiðuð og bráðskemmtileg dagskrá, og er fólki því bent á að mæta tímanlega. Aðgangur er að sjálfsögðu ókeypis og öllum heimill.
Lífið Menning Mest lesið Myndaveisla: Tröllatrukkur og Rolls Royce á svæðinu þegar hjónin gengu út Lífið Nígerísk hjón reisa glerkastala í Kjós og flytja inn tonn af blómum til að gifta sig aftur Lífið Missti höndina viku fyrir sextán ára afmælisdaginn Lífið Fréttatía vikunnar: Gleðigangan, hafmeyjustytta og handtaka Lífið Nígerískt stjörnubrúðkaup í Hallgrímskirkju Lífið Hommar, lesbíur, trans fólk og fleiri sameinast í gleðinni Lífið Bay segir skilið við Smith Lífið Hver er Endakallinn frá Ibiza? Lífið Fann lausn við verkjunum sem breytti öllu Lífið samstarf Orðin vön ferðamönnum í garðinum og fagnar komu þeirra Lífið Fleiri fréttir Opnar femínískt myndlistagallerí í Vesturbænum „Það var tímapunktur sem ég talaði aldrei um neitt“ Galdrakarlinn í Oz aftur á fjalirnar Nýr barnakór Hallgrímskirkju stofnaður Bogi hljóp í skarðið fyrir Kristbjörgu Kjeld og ærði áhorfendur Risastór menningarhátíð á Flateyri Ofboðslega falleg berskjöldun Nýjum listaverkum komið upp á Héðinsreitnum Sjá meira